145. löggjafarþing — 153. fundur,  19. sept. 2016.

breyting á lífeyrissjóðakerfinu.

[16:51]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég tel að málið sé fullþroskað og að þinginu ætti ekkert að vera að vanbúnaði að taka það til efnislegrar meðferðar með tiltölulega skömmum, ef nokkrum, umsagnarfresti vegna þess að allir helstu hagsmunaaðilar hafa og eiga að hafa kynnt sér það í þaula.

Stéttarfélög opinberra starfsmanna sem hér eiga í hlut, BSRB, BHM og KÍ, eiga beina aðkomu að málinu, eru aðilar að samkomulaginu og hafa ásamt með stjórnvöldum unnið að málinu í mjög langan tíma, nokkur ár í raun og veru. Af þessum ástæðum tel ég mjög mikilvægt að við ljúkum meðferð málsins. Takist Alþingi ekki að ljúka því blasir við að samkvæmt lögum ber ríkinu að hækka iðgjald sitt í LSR. Það er aðgerð sem við höfum vikið okkur undan á undanförnum árum með sérstakri bráðabirgðaákvörðun eða frestun á þeirri lagaskyldu. Ég held að það væri til tjóns fyrir það viðkvæma mál sem, eins og hér er sagt, varðar gríðarlega mikla hagsmuni ef það væri eitthvert hik á þinginu, nú loksins þegar áralangir samningar eru í höfn.

Ég vil að öðru leyti þakka hv. þingmanni fyrir að taka málinu með þessum jákvæða hætti. Þetta er í mínum huga alveg feikilega mikilvægt mál sem varðar hagsmuni margra um langa framtíð og er í raun og veru einn hornsteinninn að gerð nýs vinnumarkaðslíkans fyrir Ísland. Betri starfshættir og þróaðri vinnubrögð við gerð kjarasamninga inn í framtíðina eru (Forseti hringir.) að mínu áliti forsendur fyrir meiri stöðugleika og lægri verðbólgu og vöxtum á Íslandi.