145. löggjafarþing — 153. fundur,  19. sept. 2016.

meðferð sakamála.

659. mál
[18:29]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (P) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Ógn gegn friðhelgi einkalífs hefur aldrei verið eins mikil og í dag. Þess vegna fagna ég því að við séum hér að taka á þótt það sé bara agnarsmárri hlið þess og þeirrar ógnar. Það er gríðarlega mikilvægt að við séum meðvituð um, öll sem eitt, sér í lagi þau okkar sem hér erum á löggjafarþinginu, af hverju friðhelgi einkalífs er svona mikilvæg, af hverju friðhelgi einkalífs er yfirleitt sett inn í stjórnarskrárvarin mannréttindi og mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Ég fagna því að við séum að taka þátt í að búa til sjálfstætt alvörueftirlit til að fylgjast með heimildum lögreglu til að hlera almenning sem og því að við séum að taka eitt lítið skref og vona að við tökum mun fleiri til að standa vörð um grundvallarmannréttindi.