145. löggjafarþing — 153. fundur,  19. sept. 2016.

fullgilding samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

865. mál
[19:26]
Horfa

Frsm. utanrmn. (Össur Skarphéðinsson) (Sf):

Herra forseti. Það er gleðidagur að fá tækifæri til að hafa hér framsögu um tillögu til þingsályktunar um að fullgilda samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Gleðidagur segi ég vegna þess að þetta er það sem mörg okkar hafa barist fyrir lengi. Þetta er ekki fyrsta skiptið sem slík tillaga er flutt. Það hefur verið gert mörgum sinnum á umliðnum árum. Ég vil af þessu tilefni sérstaklega þakka hv. formanni utanríkismálanefndar fyrir lipurð við afgreiðslu málsins í nefndinni því að það er mála sannast að sennilega hefur ekkert mál farið á jafn skömmum tíma í gegnum hv. utanríkismálanefnd og þetta. Það er þó ekki vegna þess að nefndin hafi kastað höndum til verka, síður en svo. Það vill svo til að hér lá áður fyrir þinginu tillaga með sama orðalagi sem flutt var af nokkrum almennum þingmönnum. Hún hafði verið unnin í þaula í allsherjar- og menntamálanefnd og velferðarnefnd og sérstök skýrsla skrifuð um það. Þetta var tillaga sem hv. þm. Kristján L. Möller var 1. flutningsmaður að. Það er á grundvelli þeirrar vinnu, sem utanríkismálanefnd tók fullgilda, að málið fékk svo hraða en þó góða afgreiðslu í utanríkismálanefnd. Nefndin leggur sérstaka áherslu á að ekki er vansalaust af hálfu stjórnvaldsins að það skuli hafa tekið svona langan tíma að afgreiða fullgildingu á þessum merkilega samningi sem ber fram réttindi fatlaðs fólks. Ástæðan er sú að núna er tíu ár liðin frá því að málið var samþykkt á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna og núna er hálft tíunda ár síðan opnað var fyrir undirritun á samningnum á hinum sögufræga degi 30. mars 2007. Þann dag gekk Ísland frá undirritun sinni á samningnum ásamt 80 öðrum ríkjum. Síðan hefur liðið mjög langur tími þangað til okkur hefur tekist að ná þeim áfanga sem allir vængir þingsins virðast vera hjartanlega sammála um að ná fram til fullgildingar.

Nú er rétt að greina frá því að vegferð málsins er töluvert löng. Byrjað var að undirbúa þetta mál með sérstakri tillögu um framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðra sem samþykkt var árið 2012. Partur af þeirri áætlun var að gengið yrði frá fullgildingunni fyrir lok árs 2014. Vinnan sem þá fór af stað leiddi til þess að undir forustu innanríkisráðuneytisins var teymi ráðuneyta sem saumfór lög til að reyna að skilgreina hverju breyta þyrfti í íslenskum rétti til að hægt væri að fullgilda samninginn með þeim hætti að sómi væri að og íslensk lög tækju nauðsynlegum breytingum af hans völdum.

Það tók síðan lengri tíma en menn ætluðu í upphafi, en þessu var lokið og nú liggur hér fyrir tillaga af hálfu framkvæmdarvaldsins sem nýtur, miðað við fyrri umræður, fulls stuðnings allra stjórnmálaflokka á Íslandi. Það er vel. Ég sagði að þetta væri gleðidagur vegna þess að þetta er mál sem við sem höfum barist fyrir réttindum fatlaðra mjög lengi höfum beðið lengi eftir. Það eru ekki síst fatlaðir einstaklingar og samtök þeirra sem eiga heiður skilinn fyrir að hafa stöðugt ýtt á löggjafann og framkvæmdarvaldið um fullgildingu þessa merkilega samnings.

Þó að samningurinn bæti ekki endilega við nýjum réttarbótum er hann eigi að síður trygging fyrir því að mannréttindi fatlaðs fólks séu viðurkennd til jafns við mannréttindi annarra. Með þessum samningi er staðfestur réttur fatlaðs fólks til að njóta sömu réttinda og allir aðrir. Markmiðið er að fatlað fólk njóti allra mannréttinda og alls þess mannfrelsis og til fulls við aðra, jafnframt því að hann á að vernda og tryggja slík réttindi og um leið auka virðingu fyrir eðlislægri mannlegri reisn.

Í athugasemdum við þingsályktunartillöguna kom fram að ástæðan fyrir tilurð þessa sérstaka alþjóðlega mannréttindasáttmála um réttindi fatlaðs fólks er sú staðreynd að þrátt fyrir að fatlað fólk eigi í orði kveðnu og í réttarkerfi flestra þjóða, þar á meðal Íslands, sömu réttindi og aðrir er því ekki af ýmsum lagatæknilegum ástæðum gert kleift að fullnýta sér þessi réttindi sín. Samningurinn leggur skýrar skyldur á aðildarríkin til að virða og tryggja jafnan rétt fatlaðs fólks til að njóta mannréttinda í sama mæli og aðrir. Þannig má segja að kjarni þessa merkilega samnings snúi að jafnrétti, en eins og við vitum er jafnrétti tryggt í 65. gr. stjórnarskrár okkar góða lýðveldis.

Réttindin sem samningurinn fjallar um eru af margvíslegum toga. Þau eru m.a. jafnrétti og bann við hvers konar mismunun. Samningurinn á að tryggja réttinn til lífs, frelsis og mannhelgi. Hann á að tryggja réttarstöðu til jafns við aðra og frelsi til að þurfa ekki að sæta misnotkun í gróðaskyni, ofbeldi og misþyrmingum. Hann á að fela í sér og tryggja réttinn til líkamlegrar og andlegrar friðhelgi, réttinn til að lifa sjálfstæðu lífi og án aðgreiningar í samfélaginu. Þetta eru grundvallaratriðin sem segja má að samningurinn taki til.

Samningurinn nefnir sömuleiðis sérstaklega þau svið þar sem aðildarríki þurfa að beita sér með einstökum aðgerðum og ákveðnum hætti til að fatlað fólk fái notið sinna réttinda, enda er það ekki sama að eiga réttindi og geta nýtt sér þau. Tilgangurinn með samningnum er að eyða bilinu þarna á milli. Af þessum sökum má segja að samningurinn leggi aðildarríkjum þá skyldu á herðar að skapa þær aðstæður innan sinna vébanda að fatlað fólk geti nýtt sér sín mannréttindi til jafns við aðra.

Það er þó til lítils að leggja fram samning sem er uppfullur af góðum orðum án þess að það sé líka gert skýrt að negld séu niður ákveðin viðmið sem byggjast á eftirliti til að hægt sé að tryggja framkvæmd samningsins. Þess vegna er mælt fyrir um það í ákvæðum samningsins að aðildarríkin eigi að hafa eina eða fleiri miðstöðvar innan stjórnsýslunnar sem hefur það verk með höndum að greiða fyrir málum sem varða framkvæmd samningsins. Sömuleiðis er lögð sú skylda á herðar aðildarríkjunum að koma á fót kerfi sem fylgist með framkvæmd samningsins innan lands og fullnægir þannig meginreglum um stöðu og starfsemi innlendra stofnana á sviði verndar og eflingar mannréttinda.

Alþjóðlega eftirlitið hins byggir vegar á því að skipuð verði nefnd óháðra sérfræðinga sem starfa á vegum Sameinuðu þjóðanna og eiga að kanna stöðu réttinda fatlaðs fólks hér á landi, með hvaða hætti þau eru tryggð og með hvaða hætti aðgerðaáætlun sem hangir á þessu er síðan framkvæmd.

Úttektarnefndin á vegum Sameinuðu þjóðanna á að gefa reglulega skýrslu til Íslands og vinna athugasemdir og tillögur til Íslands um það sem betur má fara samkvæmt samningnum. Fram kom, og er rétt að nefna það, að í hv. utanríkismálanefnd urðu töluverðar umræður um hina valkvæðu bókun sem samningnum fylgdi. Vissulega hefði það verið miklu betra ef við hefðum líka getað gengið frá fullgildingu hennar núna, en að þessu sinni var sammæli um að það þyrfti aðra ákvörðun þar um þar sem fullgildingin sem hér er lagt til að verði samþykkt nær einungis til samningsins sjálfs.

Nefndin leggur sömuleiðis áherslu á að með því að samþykkja þessa tillögu felst í því jafnframt af hálfu Alþingis yfirlýsing um að þingið veiti þeim lagafrumvörpum brautargengi sem á enn eftir að samþykkja svo þau mikilvægu réttindi fatlaðs fólks sem samningurinn verndar nái fram að ganga.

Hér er um að ræða töluvert merkilega löggjöf sem við eigum eftir að sjá. Þegar hæstv. utanríkisráðherra mælti í prýðilegri framsögu fyrir þessu máli taldi hún einmitt upp tiltekin frumvörp sem á eftir að leggja fram. Þau eru kannski ekki fullgerð en verða það vonandi hið fyrsta. Þar má t.d. nefna að út af stendur að leggja fram frumvarp um þjónustu við fatlað fólk, sömuleiðis að leggja fram frumvarp til breytingar á lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga og svo er eitt sem er mjög sérkennilegt að Íslendingar skuli ekki enn hafa leitt í lög en það er bann við mismunun. Það er mjög merkilegt að innan EFTA-ríkjanna eru engin slík lög til en þau er hins vegar að finna í öllum ríkjum Evrópusambandsins, enda er það partur af félagslegum réttindum sem það samband hefur samþykkt.

Sömuleiðis á eftir að ganga frá lagaramma um sjálfstæða mannréttindastofnun sem á hér innan lands að sinna eftirliti með framkvæmd samningsins og ég gat um fyrr í framsögu minni. Sömuleiðis á eftir að endurskoða og hugsanlega breyta lögum um ráðgjöf og fræðslu varðandi barneignir, kynlíf, fóstureyðingar og ófrjósemisaðgerðir. Það er því ljóst að með því að taka ákvörðun um að fullgilda þennan samning er Alþingi Íslendinga að stíga stórt skref til að tryggja mannréttindi hóps sem borið hefur skarðan hlut frá borði. Við höfum á síðustu árum tekið fjölmörg skref til að efla mannréttindi á Íslandi. Segja má að ákveðin bylgja slíkra lagabreytinga hafi hafist með stjórnlagabreytingunni sem gerð var hér á síðasta áratug síðustu aldar undir forustu þáverandi hv. þm. Geirs H. Haardes. Síðan hefur hver bálkurinn rekið annan en það hefur alltaf vantað á að réttindi fatlaðra fylgdu eftir réttindum annarra.

Ég veit ekki hversu stór sá hópur er á Íslandi sem telja má til fatlaðra Íslendinga. Hitt veit ég, (Gripið fram í.) og það kemur fram í greinargerðinni, að á heimsvísu falla 10% allra í þann hóp. Og líkast til má telja að Íslendingar nái þeirri tölu líka, þannig að hér er sennilega um að ræða stærsta minnihlutahópinn á Íslandi. Okkur ber þá, og hefðum átt að gera það fyrir lifandis löngu, að ganga frá þessu máli en stundum þarf að stemma allar ár að einum og sama ósi til að ná fram miklum breytingum. Sú breyting sem við erum hér að ná fram lætur lítið yfir sér en þetta er risaskref sem hér er tekið í þágu baráttu fyrir auknum réttindum fatlaðra.

Eins og ég sagði í upphafi ræðu minnar er ég þakklátur formanni nefndarinnar fyrir þann skilning sem hún sýndi þessu máli. Sömuleiðis er ég sem framsögumaður málsins þakklátur þeim þingmönnum sem í fyrri umræðum tóku mjög jákvætt í þetta mál. Ég segi líka að ég er ekkert viss um að málið hefði náð fram að ganga ef ekki hefði tvennt komið til, í fyrsta lagi sú tillaga sem hv. þm. Kristján L. Möller flutti, ásamt tólf öðrum þingmönnum, og leiddi til þess að búið var að vinna undirbúningsvinnuna þegar hæstv. utanríkisráðherra lagði fram sína góðu tillögu. Án þessara tveggja tillagna sem saman falla þarna í einn farveg er óvíst að okkur hefði á þessum stutta tíma tekist að ná þessum áfanga.

Við erum u.þ.b. að ljúka honum og ég óska þingmönnum og Alþingi og þó sér í lagi fötluðum Íslendingum og öllum þeim sem berjast fyrir réttindum þeirra innilega til hamingju með þennan gleðidag.