145. löggjafarþing — 154. fundur,  20. sept. 2016.

kjararáð.

871. mál
[18:22]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um kjararáð. Með frumvarpinu er stefnt að breyttu fyrirkomulagi launa ákvarðana embættismanna, forstöðumanna og annarra þeirra sem falla undir úrskurðarvald kjararáðs sem felst í því að fækka verulega þeim sem kjararáð ákvarðar laun og önnur starfskjör. Markmið frumvarpsins eru annars vegar að fjölga þeim aftur sem taka laun samkvæmt kjarasamningum á venjulegan hátt og hins vegar að þeir sem ekki geta samið um laun á venjulegan hátt vegna eðlis starfanna hafi meiri aðkomu að málum þegar ákvarðanir eru teknar um laun og starfskjör þeirra en nú er.

Í 74. gr. stjórnarskrárinnar er kveðið á um rétt manna til að stofna félög í sérhverjum löglegum tilgangi, þar með talin stéttarfélög. Þá segir í 2. mgr. 75. gr. stjórnarskrárinnar að í lögum skuli kveða á um rétt manna til að semja um starfskjör sín og önnur réttindi tengd vinnu. Þessi ákvæði þarf síðan að skýra í ljósi alþjóðasamninga sem Ísland hefur fullgilt eða löglegt. Þar ber helst að nefna mannréttindasáttmála Evrópu en félagafrelsið er tryggt í 11. gr. hans.

Í 74. gr. stjórnarskrárinnar kemur fram sú regla sem tryggir öllum borgurum frelsi til aðildar að félagasamtökum sem stofnuð eru í löglegum tilgangi. Stéttarfélög eru þar sérstaklega nefnd til sögunnar og sýnir það hversu mikilvæg starfsemi stéttarfélaganna og frelsi þeirra til athafna er í huga stjórnarskrárgjafans.

Eitt af mikilvægustu hlutverkum stéttarfélaga er að standa að gerð kjarasamninga. Stéttarfélögum opinberra starfsmanna er með lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanna markaður almennur rammi um starfsemi sína. Þar er rakið hlutverk félaganna og settar reglur um mikilvægustu þættina í starfsemi þeirra. Er þar meðal annars að finna tæmandi talningu þeirra skilyrða sem félögin þurfa að fullnægja til að mega starfa og þau skilyrði að þau geti beitt heimildum sínum að lögum.

Rétturinn til að semja um starfskjör er hins vegar verndaður berum orðum í 75. gr. stjórnarskrárinnar þótt því sé síðan vísað til löggjafans að útfæra nánar hvert inntak þess réttar skuli vera. En þrátt fyrir réttinn til að semja um starfskjör hefur löggjafinn þó talið þörf fyrir lögskipaðan úrskurðaraðila um launakjör sumra þeirra þar sem svo háttar til að launakjörin geta ekki ráðist af samningum á venjulegan hátt vegna eðlis starfanna eða samningsstöðu. Þau rök sem hafa verið færð fyrir því að hafa lögbundinn úrskurðaraðila eru í meginatriðum tvenns konar, annars vegar er um að ræða þjóðkjörna menn og æðstu handhafa framkvæmdarvalds og dómsvalds og hins vegar er um að ræða menn sem gegna störfum sem ekki fylgir samnings- eða verkfallsréttur vegna eðlis starfanna ýmist af öryggisástæðum eða vegna þess að þeir eru í fyrirsvari fyrir ríkið og þá fyrst og fremst í kjaramálum.

Þegar metið er hverra launakjör skuli ákveðin af lögbundnum úrskurðaraðila er rétt að hafa í þeim hópi eingöngu æðstu ráðamenn þjóðarinnar, dómara landsins vegna sérstöðu þeirra samkvæmt stjórnarskránni og tiltekna embættismenn sem eðlis starfsins vegna njóta sérstöðu gagnvart framkvæmdarvaldinu. Rökin fyrir þessari skipan eru þau að óeðlilegt sé að framkvæmdarvaldið fjalli um launakjör viðkomandi. Þróun síðustu ára hefur verið í átt til aukinnar miðstýringar og of mikils fjölda þeirra sem undir ákvörðunarvald kjararáðs falla en ástæða er til vegna eðlis starfa og sérstöðu gagnvart framkvæmdarvaldinu.

Í þessu sambandi er ekki eingöngu verið að vísa til þeirra breytinga sem urðu hér eftir fjármálahrunið heldur að yfir lengra tímabil hafi þróunin verið í þessa áttina. Með félaga- og samningsfrelsið að leiðarljósi er það meginmarkmið sett í frumvarpinu að fækka verulega þeim sem kjararáð ákvarðar laun og önnur starfskjör og að þau ráðist af samningum á venjulegan hátt eftir því sem því verður við komið vegna eðlis starfanna eða samningsstöðu.

Virðulegur forseti. Með frumvarpinu eru því lagðar til nokkrar breytingar á lögum um kjararáð og fleiri lögum til samræmis við þær breytingar sem gerðar eru á lögunum um kjararáð.

Í fyrsta lagi að það verði eingöngu verkefni kjararáðs að ákvarða laun og starfskjör þjóðkjörinna manna, dómara, saksóknara, ráðherra, ráðuneytisstjóra og þeirra embættismanna í Stjórnarráði Íslands sem heyra undir ráðherra sem fer með starfsmannamál ríkisins og fara með fyrirsvar fyrir hönd ráðherra við gerð kjarasamninga, seðlabankastjóra, aðstoðarseðlabankastjóra og ríkissáttasemjara.

Í öðru lagi að kjör skrifstofustjóra í Stjórnarráði Íslands og sendiherra taki mið af kjarasamningum á venjulegan hátt, þ.e. kjarasamningum Félags háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins, og að kjör aðstoðarmanna ráðherra taki mið af kjörum skrifstofustjóra í Stjórnarráðinu.

Í þriðja lagi að sérstakri starfseiningu sem starfar á ábyrgð fjármála- og efnahagsráðherra verði falið að ákvarða nánari grunnlaunaflokkun og undirflokkun starfa auk forsendna fyrir greiðslu viðbótarlauna en hlutaðeigandi ráðherra eða stjórn ákvarði undirflokkun og viðbótarlaun á grundvelli forsendna sem sérstaka starfseiningin setur þar sem Félagi forstöðumanna ríkisstofnana verði gefinn kostur á að fylgjast með og fjalla fyrir hönd félaga sinna um álitamál sem upp kunna að koma vegna flokkunar starfa og forsendna viðbótarlauna, þ.e. að þessari sérstöku starfseiningu verði falið þetta hlutverk.

Í fjórða lagi að ákvörðun kjara framkvæmdastjóra hlutafélaga og annars konar félaga, einkaréttareðlis, sem eru að meiri hluta í eigu ríkisins og framkvæmdastjóra félaga sem eru í eigu hlutafélaga og annars konar félaga, einkaréttareðlis, sem eru að meiri hluta í eigu ríkisins verði færð aftur til viðkomandi stjórna þar sem stjórnin semur á venjubundinn hátt um laun og starfskjör framkvæmdastjóra á grundvelli starfskjarastefnu félagsins og settrar eigandastefnu ríkisins í félögum.

Í fimmta lagi að ákvörðun kjara biskups, vígslubiskupa, prófasta og presta þjóðkirkjunnar ráðist af samningum innan þjóðkirkjunnar en fari ekki eftir ákvörðun kjararáðs ef um það fyrirkomulag semst á milli ríkis og þjóðkirkjunnar, samanber samkomulags ríkis og þjóðkirkju frá 1997 og 60. gr. laga nr. 78/1997, um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar, sem sagt að takist um það samkomulag fari um ákvörðun kjara þessara aðila, biskups, vígslubiskupa, prófasta og presta, samkvæmt samkomulaginu en ella verði þeir sem hér eru upp taldir áfram undir kjararáði.

Megintilgangurinn með frumvarpi þessu er því að breyta fyrirkomulagi launa ákvarðana þannig að þeim fækki verulega sem kjararáð ákvarðar laun og önnur starfskjör. Verði frumvarpið samþykkt óbreytt fækkar þeim sem falla undir ákvörðunarvald kjararáðs samkvæmt frumvarpinu um 430 en eftir stæðu um 150, þar af 63 alþingismenn og 64 dómarar. Í þessum tölum er þá verið að gefa sér að samkomulag tækist við þjóðkirkjuna. (Gripið fram í: Samkomulag tækist við þjóðkirkjuna?) Já, þ.e. að samkomulag tækist við þjóðkirkjuna um breytingar þess efnis að kjör biskups, vígslubiskupa, prófasta og presta ráðist af samningum. Takist það ekki verða þeir sem hér voru upp taldir áfram inni í því fyrirkomulagi sem í dag gildir, þ.e. þeir munu taka laun og njóta starfskjara samkvæmt ákvörðun kjararáðs og það mundi hafa áhrif til hækkunar á þeim fjölda sem ég nefndi hér. Færri mundu falla undan ákvörðunarvaldi kjararáðs.

Hvað varðar launaákvarðanir þeirra aðila sem ekki heyrðu lengur undir ákvörðunarvald kjararáðs er einkum horft til þess að þeir hópar sem geti samið um sín kjör fái þann rétt aftur en þeir sem ekki geti samið um sín kjör fari undir svipað launafyrirkomulag og var í Noregi fram til ársins 2015 en það launafyrirkomulag hafði verið í notkun frá árinu 1991.

Norska kerfið byggist upp á fimm grunnlaunaflokkum og fjórum undirflokkum auk tímabundinna viðbótarlauna. Laun fyrir starf ræðst af því í hvaða grunnlaunaflokk og undirflokk starf raðast. Launin eru síðan uppfærð árlega þann 1. október hvert ár. Um 2/3 starfanna í norska kerfinu flokkast í grunnlaunaflokk A og B. Samkvæmt norska kerfinu var ákvörðunarvaldi skipt milli aðila þannig að ráðuneyti nýsköpunar-, stjórnsýslu- og kirkjumála staðfesti árlega röðun starfa í grunnlaunaflokk og uppfærslu launa fyrir grunnlaunaflokka og undirflokka. Ráðuneyti umbóta- og sveitarstjórnarmála hefur síðan umsjón með uppfærslu launa 1. október ár hvert og nánara eftirlit með framkvæmd launa ákvarðana. Þetta er ég að rekja stuttlega til að veita innsýn í það með hvaða hætti hægt væri að ákvarða til dæmis skrifstofustjórum í Stjórnarráðinu laun og hvernig í framhaldinu yrði hægt að taka ákvarðanir með gegnsæjum hætti um þessi mál. Um þetta eru til ítarlegar úttektir. Áfram um þetta atriði. Það eru viðkomandi fagráðuneyti sem ákvarða síðan í hvaða undirflokk starf raðast. Viðkomandi fagráðuneyti hafa í Noregi getað ákveðið tímabundin viðbótarlaunin en þau eru greidd fyrir árangur í starfi. Þau eru metin árlega á grundvelli árangurs og frammistöðusamtals, eða frammistöðumats, og geta þar í landi orðið allt að 30% af grunnlaununum.

Þess ber að geta að Norðmenn hafa nýlega gert tilteknar breytingar á kerfinu. Það er ekki viðkomandi fagráðherra sem ákvarðar laun stjórnenda sinna lengur en það er á hinn bóginn ráðuneyti umbóta- og sveitarstjórnarmála sem uppfærir árlega hámark og lágmark hvers grunnlaunaflokks. Þetta eru tæknileg útfærsluatriði sem mér fannst samt rétt að deila með þinginu í framsöguræðu minni og sjálfsagt er að verði farið nánar yfir í nefndarvinnu vegna málsins. Það er sömuleiðis rétt að geta þess að í þessu frumvarpi er ekki lagt til að gengið verði jafnlangt að þessu sinni og hefur verið gert í Noregi en við erum í þessari útfærslu nær því að fylgja leið Norðmanna sem þeir hafa viðhaft fram til ársins 2015.

Ég vil sömuleiðis aðeins koma inn á þá sérstöku starfseiningu sem ég vék að í máli mínu en samkvæmt frumvarpinu verður sérstakri starfseiningu falið fyrir hönd ráðherra að ákvarða fjölda grunnlaunaflokka starfa, á hvaða forsendum sú grunnlaunaflokkun byggir og til hvaða grunnlaunaflokks einstöku starfi verður skipað, hvaða forsendur eru fyrir frekari undirflokkun og fyrir greiðslu viðbótarlauna. Það er samkvæmt hugmyndinni og frumvarpinu hlutaðeigandi ráðherra sem ákvarðar síðan, eða eftir atvikum hlutaðeigandi stjórn, undirflokkun forstöðumanns og viðbótarlaun hans á grundvelli forsendna sem sérstaka starfseiningin setur.

Jafnframt er í frumvarpinu gert ráð fyrir því að Félagi forstöðumanna ríkisstofnana verði gefinn kostur á að fylgjast með og fjalla fyrir hönd félaga sinna um álitamál sem upp kunna að koma vegna flokkunar starfa og þegar metið er hverra launakjör skulu fara eftir nýju fyrirkomulagi er rétt að hafa í þeim hópi þá embættismenn sem ekki njóta sérstöðu gagnvart framkvæmdarvaldinu og forstöðumenn ríkisstofnana sem birtir eru á forstöðumannalista ár hvert samkvæmt 2. mgr. 22. gr. starfsmannalaganna.

Í frumvarpinu er sú leið valin að leggja til breytingar á starfsmannalögum þar sem sérstakri starfseiningu er falið að ákveða þetta fyrir hönd ráðherra. Við samningu ákvæða um nýtt launafyrirkomulag hefur verið stuðs við tillögur starfshóps um vinnuumhverfi forstöðumanna en starfshópurinn skilað tillögum um það efni og hafði þar fjallað um stöðu, starfsskilyrði og kjör forstöðumanna; skilaði reyndar fyrir nokkrum árum til ráðuneytisins sínum tillögum. Það hefur verið horft til þessa og einnig til tveggja skýrslna Ríkisendurskoðunar um mannauðsmál ríkisins sem komu út fyrir nokkrum árum undir heitunum „Mannauðsmál ríkisins-1, Starfslok ríkisstarfsmanna“ og Mannauðsmál ríkisins-2, Stefna stjórnvalda og staða mannauðsmála ríkisins“.

Það er óhætt að segja að nokkur þrýstingur hefur verið á að gerðar væru breytingar til að auka sveigjanleika í þessum efnum á undanförnum árum og að nokkru er komið til móts við það.

Ég vil síðan koma að því að í frumvarpinu er lagt til að skrifstofustjórar í Stjórnarráðinu og sendiherrar verði ekki lengur undir ákvörðunarvaldi kjararáðs eins og ég hef hér rakið. Það er rétt að geta þess sömuleiðis að til samræmingar við það er lagt til að kjör aðstoðarmanna ráðherra taki mið af kjörum skrifstofustjóra samkvæmt kjarasamningum.

Svo er í frumvarpinu lagt til að ákvörðun um laun og starfskjör framkvæmdastjóra hlutafélaga og annars konar félaga verði aftur færð til viðkomandi stjórna. Ég tel það fullkomlega eðlilegt.

Samkvæmt lögum um opinber fjármál flokkast starfsemi og verkefni ríkisins í A-, B- og C-hluta. Gengið er út frá því í frumvarpi þessu að skipting samkvæmt lögum um opinber fjármál ráði því hvort viðkomandi fari undir nýtt fyrirkomulag eða ekki. Forstöðumenn í A-hluta og forstjórar í B-hluta fari undir nýtt fyrirkomulag en framkvæmdastjórar félaga í C-hluta fari hins vegar undan ákvörðunarvaldi kjararáðs og stjórnir félaganna látnar taka aftur ákvörðun um laun og starfskjör þeirra.

Í frumvarpinu er einnig lagt til að færa ákvörðun um laun forstjóra Landsvirkjunar aftur til stjórnar og er þar gengið út frá því að skipting samkvæmt lögum um opinber fjármála ráði því en Landsvirkjun flokkast undir C-hluta. Er þetta í samræmi við það sem lagt er til varðandi framkvæmdastjóra hlutafélaga í meirihlutaeigu ríkisins. Jafnframt er lagt til að stjórnin setji starfskjarastefnu og má þar hafa hliðsjón af 79. gr. a hlutafélagalaga.

Í þessum efnum er sömuleiðis ástæða til að minna á eigandastefnu ríkisins í hlutafélögum og sameignarfélögum en þar kemur fram að kjarni eigandastefnu ríkisins byggi á því að félög í eigu ríkisins séu rekin með faglegum og gagnsæjum hætti þannig að almennt traust ríki á stjórn og starfsemi þeirra. Ég sæi fyrir mér, við þá breytingu sem mundi leiða af samþykkt þessa frumvarps, að það yrði áréttað, með sérstöku bréfi til viðkomandi stjórna, að ríkið hygðist ekki vera leiðandi um þróun starfskjara og á sama tíma væri lögð á það áhersla að hægt væri að semja um samkeppnishæf laun til að tryggja að til þessara verkefna væri hægt að ráða á hverjum tíma hæfa og öfluga einstaklinga.

Að öðru leyti leyfi ég mér að vísa almennt til eigandastefnunnar. Þar er margt sem hafa mætti til hliðsjónar í þessu samhengi. Varðandi hlutafélögin er fullkomlega eðlilegt í þessu samhengi að stjórnir félaganna gæti að því að hafa starfskjarastefnu sem samrýmist eigandastefnu ríkisins.

Ég hef hér rakið að það er háð því að samkomulag takist við þjóðkirkjuna að breyting verði gerð á núverandi skipan um ákvörðun launa presta og það verður að ráðast í framhaldinu hvort af slíku samkomulagi verður. Í frumvarpinu er lögð til breytt skipan á ákvörðun launa þessara aðila en með ákvæði til bráðabirgða er lagt til að ákvörðun launa innan þjóðkirkjunnar heyri undir kjararáð þar til samkomulag næst. Það má segja að það sé allsendis óvíst með það en þær viðræður hafa verið lifandi.

Ég vil að lokum nefna að löggjafinn hefur í nokkrum tilvikum ákveðið aðra framkvæmd á launaákvörðun tiltekinna embættismanna sem eðlis starfsins vegna njóta sérstöðu gagnvart framkvæmdarvaldinu. Rökin fyrir þessari skipan eru að ekki er æskilegt að framkvæmdarvaldið fjalli um launakjör viðkomandi. Um kjör þessara embættismanna hefur því verið fjallað í sérlögum. Þessir embættismenn eru nú ríkissaksóknari og umboðsmaður Alþingis. Ekki er gert ráð fyrir breytingu hvað þessa embættismenn varðar.

Ég vil að síðustu láta þess getið að á þeim tíma sem ég hef starfað á þinginu hefur allnokkrum sinnum komið til þess að gripið hefur verið inn í ákvarðanir sem teknar hafa verið á grundvelli sérlaga um þessi efni. Það má kannski fyrst minnast þess þegar Alþingi ákvað að grípa inn í ákvarðanir Kjaradóms á sínum tíma en undir lok árs 2005 lágu fyrir ákvarðanir sem sættu gagnrýni og þingið sá sig knúið til að bregðast við til að skapa frið á vinnumarkaði og setja gott fordæmi.

Það hefur verið lærdómsríkt ferli að fylgjast með því hvernig úr því spilaðist og síðan í framhaldinu hvernig þingið hefur í öðrum tilvikum viljað grípa inn í þróun kjara þeirra sem undir kjararáð, sem seinna var komið á fót, heyrðu. Það má segja að á árunum 2008–2009 hafi hugsunin verið sú hjá Alþingi annars vegar að skapa grundvöll fyrir sátt á vinnumarkaði um að nú væru ekki aðstæður til mikilla launahækkana og þess vegna var farið í æðstu embættismenn og forstjóra ríkisfyrirtækja og laun þeirra beinlínis lækkuð og í framhaldinu var launafrysting hjá öllum þeim sem heyrðu undir kjararáð eftir lækkun. Ég minnist þess að á þeim tíma var því haldið opnu að það gæti komið til enn frekari lækkana, það sýnir hversu svartsýnir menn voru á þessum tíma, enda yrði það þróunin á vinnumarkaðnum í kjölfarið, að menn mundu beinlínis almennt á Íslandi lækka laun. En það er ekki það sem gerðist. Það sem gerðist á vinnumarkaðnum var að það kom smávegis hik á hækkanalotu hvort tveggja á almenna markaðnum og þeim opinbera, en síðan tók nokkuð viðstöðulaus og þétt launahækkun við. Sökum þess að á þessum tíma gilti fyrir kjararáð lagaákvæði um að óheimilt væri að hækka launin varð gríðarlega mikil gliðnun á milli kjara þeirra sem heyrðu undir kjararáð og þeirra sem störfuðu á almennum markaði eða opinberum, undir kjarasamningum. Þess ber að geta í þessu samhengi að það er beinlínis lögbundið hlutverk kjararáðs að tryggja að þeir sem undir ráðið heyra njóti sambærilegra kjara og þeir aðrir í samfélaginu sem gegna viðlíka ábyrgðarstöðu.

Það er augljóst af þessu að þarna rákust á tvenns konar markmið laganna, annars vegar markmiðið um að setja gott fordæmi og virka með róandi og kannski kælandi hætti á vinnumarkaðinn og hins vegar hitt markmiðið að þar sem samningsbundinn réttur hafði verið tekinn af stórum hópi fólks, og hann samkvæmt lögum gat ekki notið réttar til að semja um kaup og kjör, þurfti að vera í gildi lagaákvæði um það hvernig, með gagnsæjum og hlutlægum hætti, kjör þeirra skyldu ákvörðuð. Þetta setti kjararáð í verulega mikinn vanda.

Á undanförnum árum og missirum hefur kjararáð verið að vinda ofan af þessari stöðu og hefur sætt mikilli gagnrýni fyrir, síðast nú fyrir nokkrum mánuðum. Ég get sagt fyrir mitt leyti að þessi ítrekuðu inngrip löggjafans í þessi mál hafa algerlega sannfært mig um að við þurfum að hafa sem allra fæsta undir kjararáði, eingöngu þá sem nauðsynlegt er að hafa þar, vegna þess að það er ómögulegt stöðu þeirra vegna að laun þeirra ákveðist af kjarasamningum.

En það er líka annað sem ég orðinn algerlega sannfærður um og það er að í framhaldinu verður að láta kjararáð í friði með sínar ákvarðanir. Við verðum að draga lærdóm af því sem við reyndum að gera hér eftir hrunið, eins skiljanlegt og það var í ljósi þeirra aðstæðna sem þá höfðu skapast. En við horfðum kannski fram hjá því að kjararáð var ekki að fara að ákvarða neitt um laun þeirra sem undir ráðið heyrðu nema þá til þess að endurspegla það sem var að gerast annars staðar á vinnumarkaði. Ég vil meina að það hafi algerlega mistekist það meginmarkmið breytinganna að hafa þetta góða fordæmisgildi og leiðbeinandi gildi um það hvernig menn sæju fyrir sér í framhaldinu að kjörin ættu að þróast; að ávinningurinn hafi verið óskaplega takmarkaður og við höfum allt fram á þennan dag verið með kjararáð í þó nokkuð óþægilegri stöðu. Ég minnist þess aldrei að það hafi verið rætt hér í þessum sal, á þeim tíma sem launin voru beinlínis lækkuð, að það hafi verið sjálfstætt markmið að lækka kjör þeirra sem undir ráðið heyrðu gagnvart viðmiðunarhópum í samfélaginu. Ég minnist þess ekki að það hafi nokkurn tímann verið rætt.

Ef það var ekki ætlunin, geta menn þá verið sammála um að kjararáði sé rétt og skylt að færa kjörin aftur upp til samræmis við viðmiðunarhópana eins og þeir þá voru? Ég spyr mig að þessu vegna þess að í almennri umræðu um þetta mál virðist vera svolítið djúpt á því að fá þetta fram.

Meginástæða þess að ég tiltek þetta hér er að það eru þessi atriði, þessi uppsafnaða reynsla af því að sjá hversu misheppnað það er af þingsins hálfu að grípa inn í þessi mál og hversu vandmeðfarinn þessi málaflokkur er, sem hafa drifið mig áfram til að koma fram með þetta mál sem ég vona að góð samstaða geti tekist um. Kjarni þessa máls er ekki um annað en að leyfa þeim sem sjálfsagt og eðlilegt er að semji sjálfir um sín kjör að gera það og taka síðan af skarið um að þeir sem eftir sitja undir kjararáði skuli njóta þeirra kjara sem kjararáð ákveður án inngripa þingsins. Ætli þingið að halda áfram að grípa inn í ákvarðanir kjararáðs verður annaðhvort að taka umræðu um það hvort kjararáð hafi brugðist lögbundnu hlutverki sínu með því að ákvarða fólki laun annaðhvort undir eða yfir því sem eðlilegt hefði talist með hliðsjón af viðmiðunarhópum eða einfaldlega að taka af fullri alvöru umræðu um það að finna eitthvert annað fyrirkomulag þar sem ekki þarf þessar sérstöku ákvarðanir. Það er einn lærdómurinn af þessu líka að ég efast ekki um að kjararáð hafi oft og tíðum frestað því að taka ákvarðanir á undanförnum árum, sérstaklega þegar ástandið var hvað viðkvæmast á vinnumarkaðnum hér á Íslandi, á undanförnum árum — það hefur vissulega verið viðkvæmt lengi vel — beinlínis til þess að hella ekki olíu á eldinn ef svo mætti segja. Það hefur svo sem fengið mann til að hugsa um það hvort það þyrfti hreinlega að vera meiri sjálfvirkni í þessum hlutum, það þyrfti bara nánast að fara að binda sig við einhverja tiltekna launavísitöluþróun sem gæti verið erfitt að ákvarða. En ég leyfi mér að velta þessum hugleiðingum upp. Þetta finnst mér skipta miklu máli. Mér finnst það skipta svo miklu máli að þeir sem njóta ekki þess réttar sem almennt er viðurkenndur sem meginregla í þessum efnum — að til viðbótar við það sé ekki verið að fikta í ákvörðunum um þeirra kjör.

Ég er í dálítið miklum vanda með að ljúka ræðu minni með því að segja hvert þetta mál ætti að fara í nefndastörfum þingsins. (Gripið fram í: Atvinnuveganefnd.) Þannig er mál með vexti að ég hef fengið ítrekaðar ábendingar um að (Forseti hringir.) það væri verið að bera í bakkafullan lækinn að senda enn eitt málið til efnahags- og viðskiptanefndar sem mér kom þó helst í hug. Ég ætla af þeirri ástæðu að segja þetta: Ég legg til, vegna þess að mér sýnist að það sé best í samræmi við þingskapalög, að málið farið til þeirrar nefndar en sýni því fullan skilning ef stjórn þingsins telur, vegna stöðu í nefndum eða af öðrum ástæðum, rétt að málið farið til annarrar nefndar, eins og t.d. stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar. (Gripið fram í: Umhverfis- og samgöngunefnd.)