145. löggjafarþing — 154. fundur,  20. sept. 2016.

kjararáð.

871. mál
[18:56]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Herra forseti. Mér er ekki kunnugt um það og hef enga yfirsýn yfir hvort einhver hætta er á launaskriði hjá stjórnum félaganna, þ.e. hjá framkvæmdastjórum, forstjórum, í kjölfarið á þessari breytingu, en ég hef þó tekið eftir því að ákvarðanir um launakjör þessara aðila eru ekki undanþegin þeirri gagnrýni sem hefur birst í fjölmiðlum þegar kjararáð hefur tekið ákvarðanir um kjör þeirra. Hvort og að hvaða marki það kann enn að vera einhver munur á launum þeirra miðað við fyrri tíma er mér ekki fyllilega kunnugt um, hef ekki tekið það sérstaklega út.

Sú breyting sem Norðmenn gerðu síðast á kerfinu hjá sér varðandi þessa grunnlaunaflokka og þetta fyrirkomulag er sú að nú er ákvörðunin ekki lengur tvíþætt, heldur er það viðkomandi fagráðherra sem ákvarðar laun sinna stjórnenda en annað ráðuneyti sem uppfærir árlega hámarkið. Við lítum þannig á að með þeirri hugmynd sem er unnið með hér sé ekki verið að ganga alveg jafn langt og færð eru rök fyrir því í frumvarpinu hvers vegna við höfum hallast að því að fylgja því fyrirkomulagi sem gilt hefur til skamms tíma í Noregi.

Í þriðja lagi var spurt um viðbrögð þeirra sem frumvarpið hefur áhrif á. Það verður að segjast alveg eins og er að þau hafa kannski verið aðeins misjöfn, en þetta frumvarp lá frammi á vef ráðuneytisins í allt sumar. Umsagnir bárust sem verður meira en sjálfsagt að fleyta áfram til þingnefndarinnar, en það er eflaust þannig að sumir verða í ákveðinni óvissu með hvernig kjör þeirra verða ákvörðuð í framhaldinu. En á sama tíma er rétt að geta þess að borist hafa líka mjög jákvæðar umsagnir. Um mál eins og þetta er einfaldlega bara það að segja að þetta getur verið háð miklu mati, (Forseti hringir.) þetta getur verið matsatriði. Mér finnst rétt að vera með þá meginlínu að taka ekki samningsbundinn (Forseti hringir.) rétt af fólki nema það sé brýn nauðsyn.