kjararáð.
Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég dreg þá ályktun, vegna þess að úrskurður kjararáðs er nýr fyrir skrifstofustjóra, að skrifstofustjórar séu komnir með ívið hærri laun en ráðherrar og ef laun aðstoðarmanna ráðherra taka mið af skrifstofustjóralaunum eru þeir líka hærri en ráðherrar. Það tel ég ekki vera rétt. Við getum kannski snúið þessu yfir og sagt eins og hæstv. ráðherra sagði, sem er alveg hárrétt, að laun þingmanna og ráðherra hafa setið hvað mest eftir af þeim sem hafa verið undir kjararáði. En við eigum líka sjálf hlut að því, virðulegi forseti.
Á þeim stutta tíma sem ég á eftir í seinna andsvari þá vil ég snúa mér að því sem mér finnst vera meginefni í frumvarpinu fyrir utan ýmsar lagfæringar, en það er að sendiherrar og prestar eru teknir undan kjararáði. Ég tók eftir því að hæstv. ráðherra sagði að þetta væri háð samkomulagi við presta. Þá spyr ég: Hvað gerist ef prestar samþykkja ekki að fara undan kjararáði miðað við samninginn sem gerður var? Ég er þjóðkirkjunnar maður og vil gæta þess að prestar hafi það gott. Ég er ekki alveg viss um að það sé rétt að fella þá undan kjararáði.