145. löggjafarþing — 154. fundur,  20. sept. 2016.

höfundalög.

870. mál
[19:36]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég skil lagalegu rökin út frá þessum hugmyndum um eignarrétt og höfundarétt í sambandi við hann. En sem notandi er ég enn þá jafn forviða vegna þess að ég veit mætavel að það mundi enginn kaupa sömu tónlistina tvisvar. Ég held því ekki að skaðinn sé raunverulegur. Ég skil lagatæknilegu rökin en mér þykja þau alfarið lagatæknileg. Mér finnst þau ekki rökrétt út frá mannlegri hegðun eða sanngirnissjónarmiði. Alls ekki. Bara lagatæknilegum hliðum. Að því sögðu er ég ekki heldur á móti því að ríkissjóður fjármagni greiðslur til rétthafa. Ég hef ekkert á móti því. Við sjáum til hvernig umræðan um frumvarpið fer. En það sem mér finnst skrýtið er að þetta séu kallaðar bætur. Ef þetta væru bara kallaðar greiðslur þætti mér það strax skárra því að það væri þá í fyrsta lagi auðveldara að skilja málið. Og í öðru lagi þætti mér það meira í takt við það hvernig fólk notar list.

Fyrst við tölum um afritun þykja mér þetta vera afskaplega gamaldags hugmyndir um það hvert verðmæti listarinnar er. Ég segi það sem forritari og tónlistarmaður sjálfur og sonur hljóðmanns og kvikmyndagerðarmanns, ég er alinn upp í þessum bransa. Ef maður ætlar að líta á hvert einasta eintak sem verðmæti vegna þess að það eintak er einhvers staðar skráð, þá verður maður að velta fyrir sér, ef maður ætlar að fara út í tæknilegu atriðin, að lagið fer í gegnum minnið í tölvunni, ekki greiðir maður í hvert einasta sinn sem það fer í gegnum tölvu. Ekki greiðir maður í hvert einasta sinn sem það fer í gegnum netið hjá manni. Nei. Verðmætin felast í því að maður hefur löglegt aðgengi að tónlistinni sjálfri. Þess vegna skil ég ekki að það geti talist einhver skaði ef einstaklingur sem kaupir sér vöru notar annað eintak af henni fyrst hann hefur keypt hana. Ef við kaupum okkur brauðrist megum við nota hana í stofunni alveg eins og við megum nota hana inni í eldhúsi. Af hverju er það eitthvað öðruvísi með tónlist og listir almennt eða hugverk?