ákvarðanir EFS-nefndarinnar um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn.
Frú forseti. Ég hlustaði grannt á ræðu hv. þingmanns. Hann harmaði hér glötuð tækifæri til að setja ákvæði inn í stjórnarskrá um afmarkað framsal valdheimilda. Nú erum við komin á þann stað að það er glatað tækifæri a.m.k. á þessu þingi. Við vitum það, ég og hv. þingmaður, að það er mikill þrýstingur á að við ljúkum þessu máli. Við erum síðasta EFTA-ríkið til að taka þetta mál til afgreiðslu.
Hv. þingmaður nefndi í ræðu sinni að ein leiðin væri að hv. formaður utanríkismálanefndar mundi staðfesta þann skilning sem áréttaður er í neyðarhemlinum í nefndaráliti meiri hluta utanríkismálanefndar. Hann nefndi einnig, sem ég nefndi raunar líka í ræðu minni, að það væri mikilvægt að heyra frá hæstv. utanríkisráðherra hvort sá skilningur hefði verið áréttaður í hópi utanríkisráðherra utan EFTA þannig að hann lægi fyrir.
Því langar mig að spyrja hv. þingmann: Telur hann einhverja slíka staðfestingu nægjanlega til að við getum í öllu fallið lokið málinu í þeirri trú að við teljum eins vel frá því fengið og unnt er? Við stöndum frammi fyrir því að stjórnarskrárákvæðið, sem ég og hv. þingmaður hörmum bæði að sé ekki til staðar, er ekki til staðar. Hvað telur hv. þingmaður fullnægjandi eða viðunandi, skulum við frekar segja, lausn á þeirri stöðu sem við erum í? Eru það þær ráðstafanir sem ég hef vísað til í þessu andsvari?