ákvarðanir EES-nefndarinnar um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn.
Frú forseti. Ég rek þessi dæmi sem ég á við, þau eru öll tekin úr ýmsum gögnum utanríkismálanefndar, samantektum, og inn í þetta er auðvitað tekin inngangan í EES og Schengen og síðan eru rakin þau þrjú sem bíða og hv. þingmanni yfirsáust tvö dæmi a.m.k., sem eru um lyf og um ríkisaðstoð, þar sem vald er framselt. Mér telst til að þetta sé rífur tugur. Kannski getum við fallist á að þau séu níu ef við tökum sjálft EES og Schengen frá.
Það sem er eftirtektarvert í þessu er að á síðustu fimm árum hefur helft þeirra komið fram, alla vega á síðustu átta árum, þannig að „tendensinn“ er þessi. Án þess að ég hafi gert það að umræðuefni í ræðu minni geri ég það samt til þess að ég hafi sagt það einhvers staðar hér í nefndarálitinu en við urðum, og ég held að hv. þingmaður hafi verið formaður nefndarinnar, ákaflega hissa þegar á fund okkar komu diplómatar og fulltrúar eins ráðuneytis sem ætluðu að sippa í gegnum sameiginlegu nefndina, voru að kynna okkur dobíu af málum og við rákumst þar sameiginlega á mál sem fól í sér framsal sektarheimildar til ESA án þess að það hafi nokkru sinni verið rætt sérstaklega í þinginu eða ríkisstjórn, heldur var talað um að EFTA hefði sett sér reglu um að í krafti lagabreytingarinnar á samkeppnislögum 2005 gætu ráðuneyti sjálf dælt inn slíku framsali valds án þess að láta nokkurn mann vita. Þetta er m.a. ástæðan fyrir því að ég hef alltaf staðið fast á bremsunni í þessum efnum og líka þegar um er að ræða afléttingu stjórnskipulegra fyrirvara, eins og hv. þingmaður veit, vegna þess að þessi mál skulu fara þannig í gegnum þingið að við vitum a.m.k. af þeim.
Það kann vel að vera að hv. þingmanni finnist sem menn séu alltaf að tala um fjölda mála. Ég hef nú ekki gert það. En hvert og eitt einasta svíður dálítið. Mig svíður enn í túlann síðan 2005 þegar breytingin á samkeppnislögunum fór hér í gegn á ákaflega hæpnum rökstuðningi.