ákvarðanir EES-nefndarinnar um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn.
Virðulegi forseti. Mér þykir óþægilegt að vita ekki hvað gerist ef við sleppum þessu á meðan það er spurning hvort þetta standist 2. gr. stjórnarskrárinnar. Þá langar mig að spyrja hv. þingmann hvort hann telji líklegt að Hæstiréttur kunni að una því vel að dæma um dómshluta 2. gr., sem er 2. málsliður 2. gr. stjórnarskrárinnar, þ.e. „dómendur fara með dómsvaldið“. Hyggur hv. þingmaður að það sé líklegt að Hæstarétti þyki það þægileg staða að fara að dæma um hvort þeir séu með dómsvaldið samkvæmt 2. gr. eða einhver annar? Ég kann ekki einu sinni að orða spurninguna, mér finnst svo (Forseti hringir.) skrýtið að við ætlum að afgreiða þetta mál og það sé óljóst og engin svör gefin um hvað gerist ef við gerum það ekki. Hvað ætlum við að hafa í staðinn fyrir Lögréttu? Getum við sent þetta til Hæstaréttar til umsagnar eða hvað?