145. löggjafarþing — 154. fundur,  20. sept. 2016.

ákvarðanir EES-nefndarinnar um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn.

681. mál
[23:11]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta utanrmn. (Össur Skarphéðinsson) (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég var mjög hissa á að heyra jafn glöggan mann og hv. þm. Birgi Ármannsson segja að það væri í lagi að samþykkja þetta mál af því það væri mjög sambærilegt öðrum málum. Mér skildist á hv. þingmanni að það sem hann ætti við væri að það byggði á tveggja stoða lausninni. Þá spyr ég hv. þingmann: Getum við þá leyft okkur að samþykkja hvað sem er bara ef það byggir á tveggja stoða lausninni? Hvernig er nú tveggja stoða lausnin í þessu dæmi? Hún er þannig að vissulega liggur hið formlega vald hjá ESA sem er partur af EFTA-stoðunum, en þar geta tvær þjóðir myndað meiri hluta gegn Íslandi. Menn töldu að það mundi kannski ekki gerast þegar við vorum að samþykkja þetta 1993. Við höfum reynslu síðustu ára. Hvernig ber ákvörðunina að? Jú, með þeim hætti að það er innan eftirlitsstofnunar Evrópusambandsins sem menn taka ákvörðun. Þeir hafa síðan samkvæmt fyrir fram ákveðnu ferli formlegan samráðsfund með ESA. Þar er ákvörðun eftirlitsstofnunar innan Evrópusambandsins rétt til ESA, sem sagt bara yfir vegginn. ESA gefur síðan formlega fyrirmæli til íslenskrar eftirlitsstofnunar sem aftur framkvæmir hana gagnvart einstöku fjármálafyrirtæki. Í neyðarástandi, hvað mundi gerast þá? Mundi einhver fjármálastofnun, ef hér væru verulega alvarlegir hlutir að gerast, segja nei? Eða mundi eitthvert fyrirtæki skjóta því til stöðvunar til dómstóla? Það mundi ekki virka. Málið væri löngu um garð gengið þegar úrskurðurinn kæmi. Þannig að ég segi við hv. þingmann: Þetta mál er ekki sambærilegt við sum af þeim málum sem við höfum verið að samþykkja. Þetta gengur miklu lengra.

Stefán Már Stefánsson og Björg Thorarensen sögðu að andlagið væri hvers kyns fjármálastarfsemi. Það (Forseti hringir.) er nú eitthvað annað en það t.d. að taka einhverjar ákvarðanir sem varðar flugöryggissvið (Forseti hringir.) og eitt fyrirtæki. Þetta getur þess vegna varðað hvert og eitt þeirra fyrirtækja sem starfa á fjármálamarkaði.