145. löggjafarþing — 155. fundur,  22. sept. 2016.

afgreiðsla EES-máls og hugsanlegt brot á stjórnarskrá.

[11:12]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Gunnar Bragi Sveinsson) (F):

Virðulegi forseti. Ég ætla að gera alvarlegar athugasemdir við fundarstjórn forseta. Hér kemur hv. þm. Björt Ólafsdóttir og virðist vera að bera af sér sakir. Ef það er þannig að þingmenn eigi að fá að bera af sér sakir í hvert skipti sem þeir eru gagnrýndir með einhverjum hætti þá gerum við ekkert annað hér á Alþingi. Ég held að hæstv. forseti þurfi aðeins að endurskoða þessa fundarstjórn því að hv. þm. Björt Ólafsdóttir fer hér beint í rauninni í umræðu um það efni sem við töluðum um áðan. Það er mjög ólíklegt … [Frammíköll í þingsal.] að bera af sér sakir í sama mund og hv. þingmaður fullyrðir það að bændur séu allir fátækir. Að tala niður til bænda með þessum hætti er vitanlega svívirða.