145. löggjafarþing — 155. fundur,  22. sept. 2016.

fjármálaleg samskipti ríkis og sveitarfélaga.

[12:42]
Horfa

Líneik Anna Sævarsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Viðvarandi verkefni ríkis og sveitarfélaga er og verður endurskoðun á verka- og tekjuskiptingu samhliða þróun samfélagsins. Sú vinna snertir í rauninni öll svið samfélagsins og skiptir okkur þess vegna öll máli. Það þarf að ríkja traust og samvinna og báðir aðilar þurfa að axla ábyrgð og taka tillit til ólíkra þarfa jafnt smæstu sem stærstu sveitarfélaganna. Jöfnunarsjóður sveitarfélaga er í lykilhlutverki í því verkefni og er löngu tímabært að endurskoða þau verkefni sem honum hafa verið falin smátt og smátt í gegnum tíðina. Markmiðið í þeirri endurskoðun þarf að vera aukið gagnsæi og einfaldara hlutverk sjóðsins. Þá þurfa allir sem fara með fjárveitingavald, lýðræðislega kjörnir fulltrúar, hvort sem þeir eru alþingismenn eða sveitarstjórnarmenn, að þekkja hlutverk sjóðsins hverju sinni.

Ferðaþjónustan hefur vissulega breytt miklu á síðustu árum og þar þarf að skýra hlutverk og yfirfara tekjuskiptingu. Eitt af því sem þarf að finna út úr þar eru leiðir til að útsvar skili sér með einhverjum hætti til smærri sveitarfélaga þar sem mikil árstíðasveifla er í fjölda starfa og útsvar þeirra sem starfa í ferðaþjónustunni rennur ekki til þess sveitarfélags þar sem teknanna er aflað. Ég álít að leggja eigi á komugjöld sem gætu skipst á milli verkefna ríkis og sveitarfélaga og gistináttaskattur sem renni alfarið til sveitarfélaga er þess virði að hann sé skoðaður betur. Þá er mikilvægt að samhliða þróun gjaldtöku á auðlindum á næstu árum verði tryggt að hluti gjaldsins renni til sveitarstjórnarstigsins með einhverjum hætti.

Verkefnin sem nú eru brýn, fyrir utan þetta, eru t.d. málefni innflytjenda, að þar þróist gott samstarf, og einnig vinna við fráveituframkvæmdir í sveitarfélögum, sérstaklega þar sem lagðar eru á auknar byrðar (Forseti hringir.) vegna krafna með almannahagsmuni í huga.