145. löggjafarþing — 155. fundur,  22. sept. 2016.

fjármálaleg samskipti ríkis og sveitarfélaga.

[12:51]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf):

Virðulegur forseti. Það er löngu orðið vandræðalegt hve þinginu hefur gengið illa að klára gjaldtöku af ferðamönnum. Ekkert hefur gerst í stjórnartíð þessarar ríkisstjórnar. Það er því full ástæða til að nota þetta tækifæri og hvetja fjármálaráðherra til þess að koma hér inn með þær tillögur sem samstaða tókst um í sérfræðinefndinni á vegum nefndar um aukna hagsæld hér í landinu á dögunum og hv. formaður atvinnuveganefndar, Jón Gunnarsson, hefur lýst stuðningi við. Þar komust menn sameiginlega að þeirri niðurstöðu að nota ætti þann gjaldstofn sem fyrir hendi er, gera á honum lítils háttar breytingar og láta hluta hans renna til sveitarfélaganna. Þetta geta sérfræðingar á vegum allra helstu hagsmunasamtaka landsins komið sér saman um og við eigum bara að afgreiða það hér í gegnum þingið þvert á flokka.

Í öðru lagi vil ég nota tækifærið og skora á hæstv. fjármálaráðherra að taka í hnakkadrambið á fulltrúum sínum hér í umhverfis- og samgöngunefnd með svipuðum hætti og hann hefur gert við fulltrúa sína í fjárlaganefnd með sköruglegum hætti á síðustu sólarhringum. Það er auðvitað algerlega óboðlegt að hér skuli innanríkisráðherra, fyrir hönd ríkisstjórnar Íslands, hafa flutt inn þingmál í framhaldi af samningum við sveitarfélögin um að færa sveitarfélögunum í landinu það sem þeim ber vegna séreignarskattsleiðarinnar og að það frumvarp hafi verið tekið í gíslingu af örfáum þingmönnum hér í þingnefnd og sé þar enn.

Maður hlýtur bara að spyrja: Er engin stjórn í landinu? Eru engar reglur í gildi? Ná ekki stjórnarfrumvörp fram að ganga fyrir stjórnarþingmönnunum sjálfum? Er ekki að treysta á samkomulag sem ríkisvaldið gerir við sveitarfélögin? Eða mega bara stjórnarfrumvörp sem byggja á samkomulagi við hitt stjórnsýslustigið daga uppi í nefnd og vera tekin í gíslingu af því ábyrgðarleysi sem menn hafa þar viðhaft?