145. löggjafarþing — 155. fundur,  22. sept. 2016.

fjármálaleg samskipti ríkis og sveitarfélaga.

[12:56]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (F):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka fyrir þessa þörfu umræðu um tekju- og verkaskiptingu milli sveitarfélaganna og ríkisins. Það er eitt sem mér finnst við þurfum að hafa í huga í þessu sambandi og það er að við þurfum að vera djörf í því að fara yfir reynsluna af því hvernig það hefur gengið þegar verkefni eru færð frá ríkinu til sveitarfélaga. Ég get t.d. nefnt að mjög margir sem ég hef hitt hafa lýst efasemdum yfir því hvernig haldið var á málum þegar grunnskólar voru færðir til sveitarfélaganna, vegna þess að það hefur ekki verið friður um starfsemi grunnskólanna og það hefur verið mikil kjarabarátta o.s.frv. Það er líka vert að horfa til reynslu annarra hvað varðar t.d. þegar málefni fatlaðra voru færð til sveitarfélaganna. Í Danmörku, þar sem ég þekki þokkalega til, þykir sveitarfélag af stærðargráðu með 75 þúsund manns alveg á grensunni við það að þola að taka við þessum málaflokki. Spurningin er því: Erum við kannski að fara fram úr okkur þegar við gerum þetta?

Í þriðja lagi hlýt ég að horfa til þess að aðstaða sveitarfélaganna í landinu er náttúrlega mjög mismunandi. Það hefur verið rætt hér að sveitarfélögin ættu að fá hlutdeild í þeirri aukningu tekna sem varða ferðamenn. Það er alveg rétt. Þess vegna er mjög sorglegt hvernig þetta er í stærsta sveitarfélagi á landinu og hér á höfuðborgarsvæðinu þar sem eru 4 þúsund einingar leigðar út til ferðamanna og líklega 13% skráðar og það er búið að girða af með lagasetningu frá Alþingi frá því í vor það sem er kallað heimilisgisting út af fyrir sig, sem þýðir að 3 þúsund einingar eru óskráðar hér úti sem ættu að bera hærri fasteignagjöld. Ég lýsi eftir frumkvæði borgaryfirvalda til að koma þessum eignum í skráningu og auka þar með tekjur borgarinnar í staðinn fyrir að (Forseti hringir.) ætla öðrum að færa borginni tekjur út af þessu. Menn verða að byrja aðeins á því að (Forseti hringir.) berjast fyrir sjálfum sér.