145. löggjafarþing — 155. fundur,  22. sept. 2016.

fundur í fastanefnd á þingfundartíma.

[14:03]
Horfa

Össur Skarphéðinsson (Sf):

Herra forseti. Ég vil þá upplýsa að við í þingflokki Samfylkingarinnar töldum að fundur mundi ganga lengur og fram yfir kl. 14. Þess vegna, vegna þess að einn af aðalmönnum okkar í þeirri nefnd þarf af persónulegum ástæðum að hverfa af fundinum í nefndinni kl. 14, höfðum við boðað til þess fundar varamann. Ég tel að það sé svartalágmark að hæstv. forseti gangi úr skugga um að fundi í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd sé lokið áður en fundi er fram haldið á Alþingi. Sá háttur hefur ekki verið hafður á síðustu átján árin eftir að þingmenn mótmæltu því að menn héldu samtímis fundi í fagnefndum þingsins og hér á þinginu. Það hefur aldrei svo ég viti til, undir stjórn þess forseta sem nú hefur af miklum skörungsskap stýrt þinginu síðustu þrjú árin, verið hafður sá háttur á þannig að ég fer fram á að það liggi fyrir að fundi í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd sé lokið.