fundur í fastanefnd á þingfundartíma.
Þetta er rétt sem hv. þingmaður segir. Það er ævinlega þannig að sé því mótmælt að fundir fari fram á Alþingi sama tíma og nefndarfundir eru yfirstandandi þá er fundum þingsins frestað. Forseti leit svo á, eftir að hafa fengið frestunarbeiðni á fundi frá kl. hálftvö til tvö og engar frekari beiðnir höfðu borist, taldi forseti einboðið að hægt væri að halda áfram fundi. Forseti var að reyna að gera ráðstafanir til að komast að því hver staðan væri varðandi þennan tiltekna fund sem hv. þingmaður vísar til og til þess að greiða fyrir þingstörfum og tryggja að þau geti gengið vel fyrir sig hér á eftir mun forseti núna fresta fundi í þrjár mínútur.