145. löggjafarþing — 156. fundur,  23. sept. 2016.

ákvarðanir EES-nefndarinnar um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn.

681. mál
[13:00]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf):

Virðulegur forseti. Það var David Cameron sem sagði að EES-löndum eins og Íslandi væri stjórnað með faxtæki frá Brussel. Nú bætist á það réttarástand að Framsóknar- og Sjálfstæðisflokkurinn færa framkvæmdarvald úr landi og réttinn til Evrópusambandsins til þess að hafa æðsta vald í fjármálaeftirliti hér og loka bönkum beinlínis eða óbeinlínis. (Gripið fram í: Rangt.) Það á að vera okkur öllum mikið umhugsunarefni. Það hefði verið miklu farsælla fyrir Alþingi við þessar aðstæður að skapa möguleikann á því að samþykkja þessar gerðir með því að breyta stjórnarskránni í stað þess að brjóta hana. Maður á ekki að brjóta stjórnarskrána. Ef hún heimilar ekki það sem þingið vill þá á þingið að sjá sóma sinn í því að setja inn þau ákvæði í stjórnarskrána sem til þarf. Annað eru engin vinnubrögð, virðulegur forseti.