ákvarðanir EES-nefndarinnar um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn.
Herra forseti. Stjórnarflokkarnir og stjórnarmeirihlutinn er búinn að koma þessu máli í alveg ótrúlega stöðu. Ég held að hæstv. núverandi forsætisráðherra væri nær að vera hér svolítið auðmjúkur frekar en að hreyta ónotum í aðra. Hann skal muna eftir þessu atkvæði sínu, að hann hafi greitt þessu atkvæði ef síðar kemur í ljós að þetta reyndist brot á stjórnarskránni. Það er hafið yfir vafa að hér á að framselja víðtækt vald og það vald getur síðar meir leitt til mjög íþyngjandi aðgerða gagnvart innlendum lögaðilum. Inngrip í rekstur, sektir, stöðvun, þetta er svona. (Gripið fram í.) Og málflutningur af því tagi að það sé þá betra að brjóta stjórnarskrána en að breyta henni, brjóta hana bara í smáskömmtum. Þessi skammtur einn og sér hlaut alltaf að verða mjög tæpur gagnvart stjórnarskránni en þegar hann bætist við EES-samninginn á sínum tíma, Schengen, framsal á sviði flugmála, umhverfismál o.fl. eru yfirgnæfandi líkur á því, segja okkur allir sérfræðingar, að við séum komin niður að vaðinu, það sé orðið ólögmætt ástand (Forseti hringir.) hvernig smátt og smátt og nú í stórum skammti er verið að framselja vald í gegnum EES-samninginn. Vilja menn hafa þetta(Forseti hringir.) svona áfram, að brjóta hana smátt og smátt meira og meira í skömmtum (Forseti hringir.) heldur en að horfast í augu við veruleikann? Það er aumingjaleg pólitík.