145. löggjafarþing — 156. fundur,  23. sept. 2016.

dagskrá fundarins og afgreiðsla mála fyrir þinglok.

[13:48]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (P):

Forseti. Nú hefur hafist hvísl á göngunum um að möguleiki sé á því að þingið haldi áfram í viku til viðbótar, fram yfir starfsáætlun. Hér er mál á dagskrá sem var ekki tilkynnt þegar forustumenn ríkisstjórnarinnar ræddu hvað þeir legðu áherslu á. Hér eru meira að segja tvö mál, annað þeirra er svo stórkostlega furðulegt að maður veit eiginlega ekki hvar maður á að byrja og alveg fráleitt að halda að það mál fari í gegn án andspyrnu. Það eru risamál inni í þinginu, ramminn, meiri háttar breytingar á lífeyrissjóðakerfinu, meiri háttar breytingar á Lánasjóði íslenskra námsmanna, almannatryggingar, sem eru miklar breytingar, og við eigum að klára þetta á nokkrum dögum.

Forseti. Ég krefst þess að það verði fundur með þingflokksformönnum (Forseti hringir.) til að fara yfir stöðuna, því að hún er ólíðandi.