145. löggjafarþing — 156. fundur,  23. sept. 2016.

raflínur að iðnaðarsvæðinu á Bakka.

876. mál
[14:02]
Horfa

iðnaðar- og viðskiptaráðherra (Ragnheiður E. Árnadóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi á þskj. 1696, mál 876, frumvarpi til laga um heimild til handa Landsneti hf. til að reisa og reka 220 kV raflínur frá Kröflustöð að Þeistareykjavirkjun og að iðnaðarsvæðinu á Bakka í Norðurþingi. Forsögu frumvarpsins má rekja til þess að í ágúst sl., 2016, kvað úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála upp úrskurði til bráðabirgða þar sem stöðvaðar voru framkvæmdir í Skútustaðahreppi og Þingeyjarsveit að því er varðar lagningu raflína frá Kröflu að iðnaðarsvæðinu á Bakka, í gegnum Þeistareyki, þ.e. Kröflulína 4 og Þeistareykjalína 1. Var í umræddum úrskurðum fyrst og fremst vísað til ákvæða nýrra náttúruverndarlaga, nr. 60/2013, sem tóku gildi 15. nóvember 2015, og stöðu framkvæmdaleyfa sveitarfélaganna gagnvart þeim.

Framangreindir úrskurðir úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og kærur sem lúta að framkvæmdaleyfum sveitarfélaganna hafa sett framvindu atvinnuuppbyggingar á Norðausturlandi í mikla óvissu. Er það mat þeirra aðila sem að þeim framkvæmdum koma, með einum eða öðrum hætti, að sú óvissa geti valdið verulegu fjárhagstjóni, bæði fyrir opinbera aðila, sveitarfélög og fyrirtæki, auk þess sem áralangur undirbúningur — sem hófst eins og flestir þeir sem í þessum sal sitja muna í tíð fyrrverandi ríkisstjórnar — að uppbyggingu atvinnustarfsemi á Bakka er í uppnámi. Sem dæmi má nefna að stöðvun framkvæmda Landsnets hefur nú þegar kostað flutningsfyrirtækið tugi milljóna króna.

Leiði frekari tafir til þess að ekki verði unnt að efna þegar gerða samninga ýmissa aðila gæti beint tjón orðið verulegt fyrir alla þá fjölmörgu aðila sem koma að uppbyggingu iðnaðarsvæðisins á Bakka og flutningi raforku inn á svæðið.

Rekstur virkjunar Landsvirkjunar að Þeistareykjum, sem vel að merkja er í þessum töluðu orðum verið að leggja hornstein að, er háður því að virkjunin verði tengd raforkuflutningskerfinu. Það er frekar augljóst en þó er rétt að benda á að rekstur virkjunarinnar er háður því að virkjunin verði tengd raforkuflutningskerfinu og nýtist þannig við atvinnuuppbyggingu á Bakka. Að sama skapi er starfsemi þýska fyrirtækisins PCC á Bakka háð því að kísilverksmiðjan fái raforku frá Þeistareykjavirkjun um sömu flutningsmannvirki.

Þá munu tafir á framkvæmdum hafa fjárhagsleg áhrif vegna þeirrar innviðauppbyggingar sem íslenska ríkið og sveitarfélög á svæðinu hafa staðið fyrir, samanber sérlög þess efnis frá árinu 2013, þ.e. lög nr. 41/2013, um heimild til handa ráðherra, f.h. ríkissjóðs, til að fjármagna uppbyggingu innviða vegna atvinnustarfsemi í landi Bakka í Norðurþingi, og lög nr. 52/2013, um heimild til samninga um kísilver í landi Bakka í Norðurþingi. Eins og við vitum eru framkvæmdir á iðnaðarsvæðinu á Bakka í fullum gangi og á áætlun. Fyrr í þessum mánuði heimsótti ég Húsavík og keyrði m.a. í gegnum jarðgöngin sem liggja frá Húsavík að iðnaðarsvæðinu, jarðgöng sem Alþingi hefur rætt og tekið ákvarðanir um á fyrri stigum. Alþingi hefur samþykkt sérlög um þennan gjörning sem og samþykkt fjárveitingar til þeirra ítrekað.

Þessu til viðbótar, og það sem öllu alvarlegra er, er að tafir á verkefninu og óvissa um framvindu þess kunna að hafa veruleg áhrif á framgang og fjármögnun annarra verkefna hér á landi, bæði verkefni sem þegar eru farin af stað og annarra sem eru til skoðunar. Menn hafa þegar orðið varir við það.

Í ofanálag er síðan veruleg áhætta á því að orðspor Íslands sem trausts fjárfestingarkosts muni til lengri tíma hljóta skaða af þeirri óvissu sem uppi er sé henni ekki eytt. Unnið hefur verið að því til fjölda ára að byggja upp gott orðspor Íslands á því sviði þar sem m.a. hefur verið lögð áhersla á fyrirsjáanleika og traust regluverk að því er nýfjárfestingar varðar.

Þegar allt er tekið saman er því litið svo á að brýnir almannahagsmunir, bæði efnahagslegir í stærra samhengi og samfélagslegir ef horft er á atvinnuuppbygginguna á Norðausturlandi, séu af því að umræddar framkvæmdir við lagningu flutningsmannvirkja raforku til Bakka tefjist ekki frekar en orðið er og að óvissu um framvindu þeirra sé eytt. Með vísan til þessara almannahagsmuna er markmið og tilefni frumvarpsins þannig að tryggja að verkefnið haldi áfram samkvæmt áætlunum og tefjist ekki frekar en orðið er. Eins og rakið er í greinargerð er litið svo á að aðrir ábyrgir valkostir séu einfaldlega ekki til staðar í þeirri stöðu sem uppi er.

Frumvarp það sem ég mæli fyrir er ekki síst fram komið vegna skýrra áskorana frá sveitarstjórnum Norðurþings, Þingeyjarsveitar og Skútustaðahrepps til ríkisstjórnarinnar. Fyrir liggur sameiginleg yfirlýsing þessara sveitarfélaga þar sem þess er farið á leit við ríkisstjórn og Alþingi að gripið verði strax til nauðsynlegra ráðstafana til að leysa þann hnút sem upp er kominn og virðist ekki leysanlegar með öðrum hætti en beinni lagasetningu. Er sú yfirlýsing fylgiskjal með frumvarpinu og vísa ég til hennar.

Með frumvarpi þessu er því verið að bregðast við þeirri stöðu sem uppi er og þeim áskorunum sem fram hafa komið, m.a. af hálfu sveitarfélaganna á svæðinu. Markmið frumvarpsins er að leysa úr þeirri alvarlegu stöðu sem blasir við vegna stöðvunar framkvæmda við framangreindar línulagnir og óvissu um það hvenær mögulegt sé að halda þeim áfram. Eins og rakið er nánar í greinargerð með frumvarpinu er litið svo á að brýnir almannahagsmunir séu af því að leiða þetta mál til lykta með eins skjótum hætti og verða má og er litið svo á að ekki séu aðrar leiðir færar, því miður, en sú lagasetning sem lögð er til í frumvarpinu. Gætt er meðalhófs þar sem skilyrði fyrirliggjandi framkvæmdaleyfa sem lúta að því að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum eru tekin að fullu upp í frumvarpinu og er því ekki verið að draga úr umhverfiskröfum til framkvæmdanna eða fórna hagsmunum náttúru á kostnað annarra hagsmuna.

Frú forseti. Efnisatriði frumvarpsins eru í stuttu máli þau að með vísan til þess hagsmunamats sem tilgreint er í greinargerð, og ég hef farið yfir hér, er lagt til að löggjafinn veiti leyfi með lögum til framkvæmda við hin nauðsynlegu flutningsvirki raforku, á grunni lögbundins undirbúningsferlis, í stað viðkomandi sveitarstjórna. Til að taka af allan vafa er með frumvarpinu jafnframt kveðið á um að útgefin framkvæmdaleyfi vegna umræddra framkvæmda við flutningslínur eru felld niður. Eftir sem áður hafa viðkomandi sveitarstjórnir eftirlit með framkvæmdunum samkvæmt ákvæðum skipulagslaga og skilyrði fyrirliggjandi framkvæmdaleyfa eru lögfest.

Jafnframt er með frumvarpinu lögð til lagaskilagrein við ný náttúruverndarlög til að taka af tvímæli um að þeim var ekki ætlað að hafa afturvirk áhrif á framkvæmdir sem langt eru komnar á framkvæmdastigi og þar sem tilskilin leyfi og stjórnvaldsákvarðanir liggja fyrir.

Við gerð frumvarpsins var leitað eftir lögfræðilegri álitsgerð frá utanaðkomandi aðila um samræmi frumvarpsins við stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar Íslands og er sú álitsgerð einnig fylgiskjal með frumvarpinu. Kemur þar sérstaklega til skoðunar svokallaður Árósasamningur og EES-samningurinn. Enn fremur var óskað eftir mati á því hvort frumvarpið færi í bága við sjálfsákvörðunarrétt sveitarfélaga og meginreglur um afturvirkni laga.

Í niðurstöðum hinnar lögfræðilegu álitsgerðar kemur fram að frumvarpið brjóti að líkindum hvorki gegn Árósasamningnum né skyldum Íslands að EES-rétti. Þá kemur einnig fram það mat að ekki verði litið svo á að frumvarpið fari gegn meginreglum stjórnskipunarréttar á grundvelli sjónarmiða um afturvirkni eða sjálfsákvörðunarrétt sveitarfélaga. Vísa ég nánar til þess rökstuðnings sem fram kemur í fylgiskjali með frumvarpinu.

Við gerð frumvarpsins var haft samráð við forsætisráðuneytið og umhverfis- og auðlindaráðuneytið. Jafnframt var haft samráð við sveitarfélögin Norðurþing, Þingeyjarsveit og Skútustaðahrepp og Landsnet. Þess ber að geta að í kjölfar úrskurða úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, um stöðvun framkvæmda, voru fundir í umhverfisnefnd og atvinnuveganefnd Alþingis um stöðu mála og auk þess áttu fulltrúar Landsnets og Landverndar fund. Í kjölfarið skipulagði Landsnet vettvangsferð um framkvæmdasvæðið. Í ferðinni voru skoðaðir staðhættir fyrirhugaðra línuleiða, auk þess sem rætt var um stöðu mála og leiðir til ná fram sátt um uppbyggingu flutningskerfisins til framtíðar þar sem óæskileg áhrif á umhverfið væru lágmörkuð.

Áður en kom til gerðar frumvarps þess sem ég mæli hér fyrir voru að auki haldnir fundir með aðkomu forsætisráðuneytis, umhverfis- og auðlindaráðuneytis, auk atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis. Skipulagsstofnun, Landvernd og Landsnet sóttu einnig þessa fundi með það fyrir augum að reyna að finna sameiginlega lausn á þeirri óvissu sem uppi er í málinu. Var það mat aðila í kjölfar þeirra að ekki reyndist, og aftur segi ég því miður, vera flötur á því að ná samkomulagi um lausn á málinu á milli kæranda og framkvæmdaraðila. Af þeim sökum var ráðist í gerð þess frumvarps sem hér er lagt fram þar sem litið er svo á að með vísan til þeirra hagsmuna sem tilgreindir eru í frumvarpinu séu aðrir ábyrgir kostir einfaldlega ekki færir í þeirri þröngu og alvarlegu stöðu sem uppi er.

Í þessu samhengi er rétt að geta þess að fyrir liggur hugmynd Landsnets um minni háttar breytingar á Þeistareykjalínu 1 til að koma til móts við sjónarmið Landverndar og til að draga frekar úr skerðingu á hrauni. Hún felst í að legu línunnar er hnikað á u.þ.b. tveggja kílómetra kafla og með því er sneitt hjá því að möstur eða slóðar verði innan hverfisverndaðra hrauntungna.

Fyrir liggur það mat Skipulagsstofnunar að tillaga að slíkum breytingum sem Landsnet hefur kynnt stofnuninni vegna Þeistareykjalínu 1 kalli einvörðungu á óverulega breytingu á aðalskipulagi og deiliskipulagi. Standi vilji sveitarstjórnar Þingeyjarsveitar til að verða við óskum um slíka breytingu ætti afgreiðsla skipulagsbreytinganna að geta gengið hratt fyrir sig. Einnig liggur það fyrir að Landsnet telur hægt að ráðast í slíka breytingu á Þeistareykjalínu 1 án óásættanlegra tafa á verkefninu.

Virðulegi forseti. Eins og ég hef rakið tel ég að hér sé um afar brýnt mál að ræða í ljósi þeirra víðtæku efnahagslegu og samfélagslegu hagsmuna sem í húfi eru. Ég bendi á að hér er um uppbyggingarverkefni að ræða sem nær yfir líftíma fleiri en einnar ríkisstjórnar og því mikilvægt að reyna að ná breiðri samstöðu um framgang málsins á Alþingi og að Alþingi sendi skýr skilaboð til að eyða þeirri alvarlegu óvissu sem uppi er varðandi framgang framkvæmda tengt atvinnuuppbyggingu á Norðausturlandi sem unnið hefur verið að í áraraðir, þvert á flokka.

Virðulegi forseti. Ég legg til að frumvarpinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. atvinnuveganefndar og 2. umr. Ég vil fyrir fram þakka hv. þingmönnum fyrir að hafa skilning á því sem ég hef fundið fyrir í þinghúsinu að hér sé um brýnt mál að ræða og í ljósi þeirrar umræðu sem hér var um fundarstjórn forseta fyrir þennan dagskrárlið tel ég sérstaklega rétt að þakka það og vona svo sannarlega að við getum í sameiningu afgreitt málið hratt og vel, sama hvaða skoðanir menn kunna að hafa á efnisinnihaldi frumvarpsins.