raflínur að iðnaðarsvæðinu á Bakka.
Virðulegi forseti. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra í fyrsta lagi varðandi nokkur álitamál sem eru reifuð í lögfræðiálitinu sem er dreift hér sem fylgiskjali með frumvarpinu. Ég þakka fyrir að það fylgir með, enda er augljóslega um að ræða töluvert mörg lögfræðileg álitamál þegar svona mál er sett fram þar sem verið er í raun og veru að fara á skjön við heildarlöggjöf, hvort sem það er náttúruverndarlöggjöf, skipulagslöggjöf, lög um sveitarfélögin eða sjálfsákvörðunarrétt þeirra í stjórnarskrá í þágu eins tiltekins verkefnis. Það er óvenjulegt að farið sé fram með þeim hætti og þess vegna full ástæða til að reifa mjög ítarlega þau álitamál sem þar koma upp.
Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra í fyrsta lagi um þau sjónarmið sem snúast um Árósasamninginn. Hér erum við að tala um frumvarp sem í raun og veru stoppar tiltekið ferli. Spurningin er um frumvarpið í heild sem miðar að því að slíta þessa lögmætu málsmeðferð í sundur fyrir óháðum úrskurðaraðila, sem kæruaðilar byggja á samkvæmt Árósasamningnum, með því að taka framkvæmdaleyfið úr sambandi með löggjöfinni og setja nýtt framkvæmdaleyfi. Lögfræðiálitið afgreiðir spurninguna um það hvort frumvarpið brjóti í bága við Árósasamninginn bara með því að skoða hvort nýja leyfið sem felst í frumvarpinu falli undir samninginn en fjallar ekkert um hvort leyfið sem er nú í gildi falli undir samninginn og með því að taka það úr gildi sé verið að fara á svig við Árósasamninginn. Það kemur á óvart að þetta sé ekki ávarpað með sérstökum hætti í álitinu.