145. löggjafarþing — 157. fundur,  26. sept. 2016.

almennar stjórnmálaumræður.

[20:40]
Horfa

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (Sf):

Kæru landsmenn. Kjörtímabilið sem nú er að ljúka hefur einkennst af deilum um heilbrigðismál, ekki síst verkföllum lækna, hjúkrunarfræðinga og annarra sérhæfðra starfsstétta. Öllum er ljóst að efla þarf heilbrigðiskerfið og núverandi ríkisstjórn hefur í samningum við lækna lofað bót og betrun. Við þetta loforð hefur hún ekki staðið. Þrátt fyrir undirskriftir 86.000 Íslendinga gera áætlanir ríkisstjórnarinnar ekki ráð fyrir viðunandi uppbyggingu í heilbrigðismálum. Um þetta eru allir sem til þekkja sammála.

Íslenskir læknar vildu samkeppnishæf laun við lækna á Norðurlöndunum. Það fengu þeir. Íslenskur almenningur vill einnig sambærilegt heilbrigðiskerfi og almenningur á Norðurlöndunum býr við. Það hefur íslenskur almenningur enn ekki fengið og mun ekki fá ef núverandi ríkisstjórn heldur velli. Veikt fólk á Íslandi þarf ekki að búa við lakari aðhlynningu en veikt fólk á Norðurlöndunum almennt gerir. Til að breyta þessu þarf metnað og áræðni.

Við í Samfylkingunni ætlum að byggja upp besta heilbrigðiskerfi í heimi og biðjum kjósendur um að veita okkur umboð til þess. Við ætlum að setja miklu meiri peninga í heilsugæsluna svo hún geti tekið á móti öllum sem kenna sér meins og við ætlum henni veigamikið hlutverk í að stórefla sálfræði- og geðheilbrigðisþjónustu. Við ætlum að stytta biðlista þannig að enginn þurfi að bíða lengur en þrjá mánuði eftir viðeigandi aðgerð eða þjónustu. Við viljum bjóða upp á gjaldfrjálsa heilbrigðisþjónustu og þar eru fyrstu skrefin að lækka kostnað þeirra sem eru alvarlega veikir og langveikir. Við ætlum líka að auka sérfræðilæknaþjónustu í hinu opinbera heilbrigðiskerfi fyrir alla íbúa landsins og skapa heilbrigðisstarfsfólki starfsaðstæður sem standast samanburð við Norðurlöndin. Þess vegna ætlum við að hraða uppbyggingunni við Hringbraut til að auka öryggi sjúklinga, bæta aðstæður starfsfólks með byltingarkenndum hætti og efla vísindastarfið. Öflugir ríkisreknir spítalar eru lykillinn að besta heilbrigðiskerfi í heimi. Samfylkingin hafnar því frekari einkavæðingu í heilbrigðismálum.

Góðir landsmenn. Við í Samfylkingunni þurfum ykkar atkvæði í kosningunum til að geta hækkað lífeyrisgreiðslur almannatrygginga. Okkur finnst skammarlegt að þeir sem minnst hafa fái 185.692 kr. í vasann á mánuði og að í nýju frumvarpi hægri stjórnarinnar eigi að setja 5 nýja milljarða inn í kerfið þar sem þessi hópur fær ekki neitt. Við ætlum að hækka greiðslur almannatrygginga strax og greiða fólki afturvirkt til 1. maí 2016 svo tekjur eldri borgara og öryrkja fylgi þróun á vinnumarkaði. Við höfum lagt fram tillögur um 300.000 kr. fyrir lífeyrisþega á sama tíma og launafólk og ætlum að afnema hinar alræmdu krónu á móti krónu skerðingar, líka fyrir öryrkja. Þessar tillögur okkar hafa stjórnarflokkarnir fellt, ekki bara einu sinni, heldur þrisvar.

Við í Samfylkingunni fögnum fjölgun eldri borgara. Það þýðir að fólk er heilbrigðara og fær að njóta lífsins lengur. Við höfum hins vegar áhyggjur af því að ungt fólk hafi ekki ráð á því að eignast börn. Þess vegna, góðir landsmenn, biðjum við í Samfylkingunni um stuðning ykkar til að geta tvöfaldað stuðning við barnafjölskyldur með hækkun barnabóta og betra fæðingarorlofskerfi. Hámarksgreiðslur verða 600.000 og fæðingarorlofið lengt í 12 mánuði. Við lengdum reyndar fæðingarorlofið undir lok síðasta kjörtímabils en það var eitt af fyrstu verkum hægri stjórnarinnar að stytta það aftur í níu mánuði. Það var gert um svipað leyti og hún lækkaði veiðigjöld á útgerðina.

Kæru landsmenn. 1% landsmanna á 507 milljarða í hreinni eign. Nú vitum við líka að óvenjumargir Íslendingar eiga eignir í skattaskjólum sem bætast ofan á þessar eignir. Í þeirra hópi eru forustumenn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks.

Við í Samfylkingunni vinnum ekki fyrir skattaskjólsfólkið heldur venjulegt fólk. Skattaskjólsfólkið lækkaði veiðigjöld á útgerðina, afnam sérstakan raforkuskatt á stóriðju, lækkaði virðisaukaskatt á ferðaþjónustu og afnam auðlegðarskatt á ríkasta fólkið. Við í Samfylkingunni viljum nota þessa peninga í þágu okkar allra því að við viljum heilbrigðara samfélag.