afgreiðsla mála fyrir þinglok.
Forseti vill aðeins út af þessum orðum og fleirum sem hafa fallið í álíka veru hér í dag vekja athygli á einföldum hlut. Það er rétt að forseti fer með dagskrárvaldið frá degi til dags. Forseti setur dagskrána og reynir yfirleitt að gera það í sæmilegri sátt við þingmenn, fulltrúa allra flokka. En að lokum er það þó þannig — vegna þess að hér ríkir lýðræði, þar sem ágreiningur er leystur, ef ekki er hægt að leysa hann með öðrum hætti, með afli atkvæða — að þrátt fyrir að forseti hafi þetta dagskrárvald frá degi til dags þá getur meiri hlutinn á Alþingi hverju sinni breytt dagskránni ef hann svo kýs. Það er það fyrirkomulag sem hér er. Þess vegna gerist það auðvitað að ríkisstjórnin hefur áhrif á það með hvaða hætti dagskránni er skipað. Forseti hefur hins vegar lagt sig fram um það í sínum störfum á þessu hausti eins og endranær að reyna að hafa gott samstarf við hv. þingmenn um dagskrána. Forseta er alveg kunnugt að það er ekki alltaf þannig að hv. þingmenn séu allir ánægðir með dagskrána eins og hún er lögð fram, en forseti hefur engu að síður reynt að eiga gott samráð. Jafnan hefur það verið svo að bærilegur friður hefur verið um skipan dagskrárinnar þó að ágreiningur sé um efni málanna sem þar eru á dagskrá.