145. löggjafarþing — 158. fundur,  27. sept. 2016.

afgreiðsla mála fyrir þinglok.

[11:28]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Forseti gæti auðveldlega látið svona ummæli fara í taugarnar á sér en ætlar ekki að gera það. Forseti er forseti alls þingsins og hefur unnið í þeim anda. Það er hins vegar ekki þannig að þegar verið er að stýra þjóðþingi sé alltaf hægt að gera allt eins og öllum líkar. Stundum þarf að taka af skarið og þá getur farið svo að ekki séu allir jafn ánægðir með þá niðurstöðu.