145. löggjafarþing — 158. fundur,  27. sept. 2016.

Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins.

873. mál
[12:18]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (P):

Forseti. Hér fáum við til þingsins svo stórt mál að það mun hafa áhrif á afkomu allra landsmanna. Frést hefur að mikill asi hafi verið við gerð frumvarpsins síðustu vikurnar og ljóst er, út frá því sem maður hefur heyrt frá hinum ýmsu aðilum sem þessi lög varða, að fólk upplifir sig ekki almennilega upplýst. Og það er alvarlegt ef fara á með þetta frumvarp í gegnum þingið með þessar miklu breytingar án þess að almenningur sé upplýstur um eðli þeirra breytinga og hvaða þýðingu þær hafa fyrir bæði þá sem eru nú þegar í kerfinu og þó sér í lagi fyrir þá sem munu ganga í kerfið eftir að lögin taka gildi.

Ég vil taka undir með hv. þm. Katrínu Jakobsdóttur varðandi málamiðlun sem mér finnst algjörlega réttlætanleg og í raun nauðsynleg, sem er að setja á fót milliþinganefnd. Ég mun styðja þá tillögu. Ég vil jafnframt taka undir þá gagnrýni að málinu verði vísað til fjárlaganefndar en ekki til þeirrar nefndar sem frumvarpið ætti að fara í eðli málsins samkvæmt, sem er efnahags- og viðskiptanefnd.

Um leið og frumvarpið lá fyrir fengu þingmenn fjölda orðsendinga frá ýmsum undirfélögum þar sem það var harðlega gagnrýnt. Fólk upplifir sig mjög óöruggt af því að það vantar algjörlega allar upplýsingar varðandi þessa breytingu, sem allir eru þó sammála um að fara þurfi í, þ.e. að sameina réttindi lífeyrisþega, og nákvæma útfærslu á því hvernig hækka á laun til að koma til móts við þau réttindi sem tekin eru af.

Þegar fyrst var fjallað um málið kom fram í máli hæstv. fjármálaráðherra, eða það mátti í það minnsta skilja hæstv. ráðherra þannig, að A-deildin væri líka með ríkisábyrgð.

Það virðist vera ansi algengt hér á landi að þegar laga á réttindi eru réttindin yfirleitt færð niður á við en þeir sem hafa lakari réttindi eru ekki færðir upp á við. Ég gagnrýni það. Þá vil ég líka benda á að ef við förum í þá vegferð að vinna í þessu máli á milli þinga er hægt að vera með upplýsta umræðu um málið þannig að allir þeir sem þurfa að búa við þessar lagabreytingar fái tækifæri til þess að ná sér í upplýsingar um það og líka að koma með ábendingar. Á meðan ekki er þannig bundið um hnútana mun engin sátt ríkja um málið og fullkomlega óeðlilegt að við ætlum að fara með þessar meiri háttar breytingar í gegnum þingið á örfáum dögum.

Mikið hefur verið rætt um að málið hangi nánast á bláþræði og því sé mikilvægt að klára það strax. Ég mundi gjarnan vilja fá nákvæma útlistun á því af hverju það þarf að klára þetta mál á morgun í stað þess að taka jákvætt í tillögu minni hlutans um milliþinganefnd. Ef hæstv. fjármálaráðherra óskar eftir því að stöðugleiki ríki í samfélagi okkar þá er þetta tiltekna frumvarp ekki til þess fallið nema um víðtæk sátt náist í samfélaginu.

Þeir sem reiknað hafa út lífeyrissjóðsréttindi á almenna markaðnum í reiknivél sem hægt er að finna hjá Tryggingastofnun sjá að það er nánast alveg sama hversu mikið borgað er í lífeyri. Munurinn á þeim sem komnir eru á aldur og hafa borgað vel til að fá sín lífeyrisréttindi og þeim sem fá lífeyrisbætur, sem hafa kannski verið í þannig vinnu að þeir eru ekki með sambærileg réttindi, þ.e. fá svokallaðar strípaðar lífeyrisbætur, er mjög lítill.

Ég held að það sé mjög brýnt að við notum tækifærið núna þegar jafna á réttindi þeirra sem eru í opinbera lífeyrissjóðakerfinu og þeirra sem eru á almenna markaðinum, að skoða lífeyrissjóðakerfin heildrænt. Í efnahags- og viðskiptanefnd er frumvarp sem fjallar um hvernig lífeyrissjóðirnir mega fjárfesta. Þar hafa komið fram tillögur um að settar séu siðareglur um það og ég tel það mjög gott. En ég tel jafnframt mjög brýnt að í stjórn lífeyrissjóðanna, sem eru orðnir gríðarlega mikil stærð í samfélagi okkar, séu lýðræðislega kjörnir fulltrúar.

Ég held líka að það sé mjög brýnt að við höfum í huga að núverandi ríkisstjórn, og þá sér í lagi Sjálfstæðisflokkurinn, hefur talað fyrir því að „almannavæða“ ríkisbankana. Ekki er langt síðan það var gert með skelfilegum afleiðingum. En hin mikla stærð lífeyrissjóðanna í samfélagi okkar þýðir líka að við þurfum að passa vel upp á hvernig okkar sameiginlegu fjármunir eru notaðir í fjárfestingar. Margir óttast að með þessum breytingum hefjist að nýju óráðsía með sameiginlega hagsmuni þjóðarinnar, sameiginlega fjármuni. Ég get ekkert metið það 100% í dag. Til þess að ég geti metið það 100% og upplifað að þessi væntanlegu lög séu nægilega þroskuð og að um þau séu nægilegar upplýsingar til staðar þannig að þeir sem þurfa að lúta þessum lögum, bæði þeir sem þegar eru í kerfinu og þeir sem eru að koma nýir inn í það — ég get ekki myndað mér alvöruafstöðu um málið. Sér í lagi finnst mér óþægilegt að hafa heyrt hversu mikill asi var við gerð lagasetningarinnar.

Ég er talsmaður þess að á Alþingi sé fagmennska viðhöfð við lagasetningu þar sem tekið er tillit til ábendinga. Oft koma mikilvægar ábendingar um hrein og klár mistök í lagasetningu. Ég varð vitni að því síðast í morgun varðandi lög í tengslum við kjararáð þar sem óvart var kominn inn einhver bútur í lögin sem ekki átti að vera þar, hann hafði verið settur inn fyrir misgáning. Þegar við horfum á svona viðamikil lög, því að ekki eru lögin um kjararáð mjög viðamikil miðað við þetta, er alveg ljóst að það er óboðlegt Alþingi að taka við frumvarpi sem skrifað er í bægslagangi og á í raun ekki að fá eðlilega þinglega meðferð út af því hve stuttur tími er eftir af starfsáætlun Alþingis. Alþingi á að pakka saman núna á fimmtudaginn.

Ég kalla eftir því að brugðist verði við sáttatillögum og leið minni hlutans til að hægt verði að halda áfram með þetta mál. Ég vonast til þess hæstv. fjármálaráðherra sé tilbúinn til þess. Ef ekki þá mundi ég vilja fá almennileg rök fyrir því. Í þetta vantar líka almennilega útreikninga um það hvað gerist nákvæmlega þegar nýtt fólk kemur inn í kerfið og það vantar, eins og áður hefur komið fram, nákvæma útlistun á því hvernig launin eiga að hækka. Við sem búum hér á landi höfum oft fundið það á eigin skinni að ýmsu fögru er lofað en ef það er ekki geirneglt þá stenst það yfirleitt ekki. Það á sérstaklega við um það þegar verið er að skerða réttindi.

Af hverju í ósköpunum á að samþykkja eitthvað svona ef ekki er tryggt að það verði til þess að þeir sem eru í opinbera kerfinu fái þá það sem lofað er en er ekki útfært? Það er eitt að segja að launin muni hækka — og ég hef meira að segja séð setningar á borð við „að stefnt sé að“. Það er ekki áætlun. Áætlun er nákvæm útlistun. Við höfum horft upp á gríðarlega mikla kjarabaráttu undanfarin ár hér á Íslandi og margir eru í sárum eftir að lög hafa verið sett á verkföll. Því finnst mér óvarlega farið að reyna að þrýsta þessu máli hratt í gegnum þingið án upplýstrar umræðu, án sáttar, án þess að þeir sem þurfa að lifa eftir lögunum geti verið upplýstir um málið. Ég skora á þá sem vilja halda áfram með mál sem byrjaði í raun hjá síðustu ríkisstjórn, að þeir sem vilja halda áfram á þessari vegferð komi til móts við tillögur minni hlutans um milliþinganefnd.

Það er alveg ljóst að allir vilja breyta þessum kerfum. Það er ekkert að óttast. Af hverju þennan asa? Það hefur ekki verið skýrt með nægilega góðum rökum enn sem komið er. Það væri því mjög gagnlegt að hæstv. fjármálaráðherra, þegar hann lokar málinu hér á eftir, veiti tillögu um milliþinganefnd brautargengi eða útskýri nákvæmlega af hverju taka á mál er varðar afkomu allra þeirra sem búa hér á landi, og hafa áunnið sér og munu ávinna sér lífeyrisréttindi, í gegnum þingið án þess að um það ríki upplýst samþykki þeirra sem þurfa að búa við það.

Ég tel mjög brýnt að nú þegar verði farið í að halda fundi með félögum í þessum stéttarfélögum. Ég var satt best að segja frekar hissa á því hversu lokað ferlið var allt saman. Mér finnst það óeðlilegt og í raun og veru ekki stéttarfélögunum til sóma. Maður hefur heyrt í mjög mörgum félögum í þessum stéttarfélögum sem eru mjög óöruggir. Þó að svo virðist vera að réttindi þeirra sem nú þegar eru í kerfinu verði ekki skert hef ég ekki séð útreikninga á því hvernig það verður í raun og veru fyrir hvern og einn einstakling eða hvern hóp og hvaða áhrif það mun hafa á afkomu þeirra, hvort sem það varðar lífeyri eða laun.