145. löggjafarþing — 158. fundur,  27. sept. 2016.

Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins.

873. mál
[14:46]
Horfa

Árni Páll Árnason (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka andsvarið. Fyrst varðandi seinni spurninguna. Jú, við erum auðvitað í erfiðri stöðu vegna þess hversu lítill tími er til að vinna málið. En á móti kemur að það hefur verið til meðferðar á vettvangi stéttarfélaganna, sem málið snertir sérstaklega, ríkisins og almenna markaðarins með formlegum hætti í fimm ár og enn lengur óformlega. Í frumvarpinu er verið að lögfesta samkomulag sem gert hefur verið við heildarsamtökin. Ég er þeirrar skoðunar og þeirrar gerðar að ég treysti alltaf forustu verkalýðshreyfingar. Ég held því aldrei fram að ég viti betur en forusta verkalýðshreyfingarinnar þegar kemur að hagsmunum umbjóðenda hennar.

Þess vegna sé ég ekki einhverjar hættur í málinu út frá aðdraganda þess. Ef þetta væri venjulegt frumvarp sem stafaði frá Stjórnarráðinu og væri órætt við hagsmunaaðila, væri það auðvitað allt annað mál.

Varðandi síðan breytingar á lífeyriskerfinu. Ég þekki nú ekki lífeyriskerfið í öðrum löndum í þaula til þess að vita hvar eru nákvæmlega fyrirmyndir af þessum toga, en ég þykist vita að menn hafi ólíka lífeyrissjóði eftir aldri félaga og ólíka stefnu eftir aldri félaga. Þessi hugmynd er kannski leið til þess að reyna að laga þörfina á þessum sveigjanleika að íslenska kerfinu. Alþýðuflokkurinn barðist einu sinni fyrir einum lífeyrissjóði fyrir alla landsmenn. Þá var verið að hugsa um eitt réttindakerfi fyrir alla landsmenn. En það er augljóslega vont að hafa einn lífeyrissjóð, því að þá er það bara einn maður eða fáir menn sem ráða öllum fjárfestingum alls lífeyrissjóðakerfisins. Það er því mjög mikilvægt að það sé ákveðin fjölbreytni. Svo getur það líka gengið út í öfgar þegar (Forseti hringir.) lífeyrissjóðir eru farnir að skipta tugum og eru þar af leiðandi allt of margir og allt of litlir til þess að hafa (Forseti hringir.) einhverja sérhæfingu í fjárfestingarstefnu.