Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins.
Virðulegi forseti. Ég er að velta fyrir mér þessu með tortryggni notenda sem margir hverjir hafa haft samband við okkur í gegnum tölvupóst, sent okkur línu, og sagt að samið hafi verið í ákveðnu umboðsleysi. Nú þekki ég ekki hvernig þessi félög starfa og þekki málaflokkinn ekkert sérstaklega vel heldur, ef ég segi alveg eins og er. En ég velti fyrir mér hvort ekki sé mikilvægt, ef þetta er gott mál — ég átta mig á því að hv. þingmaður er jákvæður gagnvart málinu sjálfu: Er ekki mikilvægt að slá á þessa tortryggni? Ég er í fyrsta lagi að velta því fyrir mér.
Ég skil heldur ekki alveg enn út á hvað þessi tortryggni gengur. Hvaða verkefni mundi þingnefndin fást við, hvort sem það væri milliþinganefnd eða venjuleg fastanefnd Alþingis, hvað væri það sem við mundum gera til þess að slá á tortryggnina? Er tortryggnin byggð á misskilningi? Er hún eingöngu til komin út af samráðsleysinu? Oft er sagt að samráð skapi sátt. Stundum er sagt að samráð hafi verið haft en fólk upplifir ekki það samráð, þá finnst því að það hafi verið skilið út undan og hefur þá tilhneigingu til að vera neikvætt gagnvart málum án þess að efnislegar ástæður séu endilega til þess. En þessi tortryggni í málinu, skapast hún af því einu að fólk trúir því ekki að síðar meir verði komið til móts við aðrar kröfur eða hvernig er það? Ég hefði áhuga á að skilja betur á hverju tortryggnin grundvallast.