145. löggjafarþing — 159. fundur,  28. sept. 2016.

gjaldeyrismál.

826. mál
[12:01]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna og skýringuna á þessu ágæta nefndaráliti og langar að fagna því sérstaklega að nefndin hefur tekið tillit til sjónarmiða sem komu frá umsagnaraðilum, t.d. Persónuvernd, í sambandi við 12. gr. Ég hef tekið eftir því á mínum þingferli frá upphafi, allt frá hagstofumálinu sumarið 2013, að þessi tiltekna stofnun, Seðlabanki Íslands, virðist einhvern veginn aldrei fá nægar upplýsingar, hún virðist alltaf vilja meiri upplýsingar. Ég man ekki til þess máls á Alþingi sem hefur fjallað um Seðlabankann án þess að það væri ákvæði um enn frekari heimildir til upplýsingasöfnunar. Aðilar úti í bæ auðvitað hafa kvartað undan þessu og með réttu held ég.

Ég velti fyrir mér hvenær við erum komin á þann stað að við þurfum að fara að setja upp eitthvert eftirlitskerfi í kringum í fyrsta lagi upplýsingasöfnunina, í öðru lagi upplýsinganýtinguna, sömuleiðis hvað varðar eyðingu gagna. Nú er ég ekkert að draga úr fagmennskunni hjá Seðlabanka Íslands. Ég er alveg viss um að þar sé þetta sennilega í eins góðu lagi og hægt er að hafa það á Íslandi. En þetta er ofboðslega mikið af upplýsingum sem núna er safnað og notuð í miklum mæli í ofboðslega víðum skilningi. Ég velti fyrir mér hvenær er kominn tími til að setja inn einhverja almenna meginreglu um þetta fyrirbæri sem er upplýsingasöfnun Seðlabankans. Þetta er orðið mjög áberandi finnst mér alltaf þegar við tölum um Seðlabankann.

Nú hef ég ekki tíma í þessu andsvari til að fara út í miklar umræður um samhengið við krónuna og þá staðreynd að það er nauðsynlegt að safna miklum upplýsingum til að viðhalda stöðugleika, en ég velti fyrir mér vegna þess að ég veit að hv. þingmaður er prinsippmaður þegar kemur að friðhelgi og tekur þetta alvarlega, eins og sést á nefndarálitinu reyndar og breytingartillögum nefndarinnar: Hvenær erum við komin á þann stað að við þurfum að fara að huga að því að draga úr þessum heimildum?