145. löggjafarþing — 159. fundur,  28. sept. 2016.

framhald þingstarfa.

[15:03]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Mig langar að biðja virðulegan sitjandi forseta um að senda skilaboð ef mögulegt er til þeirra aðila sem mundu frétta af því fyrst ef einhverjar upplýsingar kæmu fram, svo sem um það ef einhverjir fulltrúar meiri hlutans væru að ræða við einhverja fulltrúa minni hlutans eða því um líkt. Ég held að það hjálpi til ef nýjar upplýsingar koma fram um það, að sitjandi forseti hverju sinni tilkynni það í þingsal þannig að við þurfum ekki sífellt að vera að eyða tíma í að spyrja um það. Auðvitað ætti það að vera alveg sjálfsagt. Það er miður að þurfa að taka það fram sérstaklega, og sér í lagi að það þurfi að gerast ítrekað. Ég átta mig á því að sitjandi forseti er ekki hv. 2. þm. Norðvesturkjördæmis, en ég óska eftir því að sitjandi forseti hverju sinni leggi sig fram um að halda þingsal upplýstum um gang mála, líka ef það eru engar fréttir, því að engar fréttir eru fréttir við þessar kringumstæður.