145. löggjafarþing — 159. fundur,  28. sept. 2016.

opinber innkaup.

665. mál
[17:04]
Horfa

Valgerður Bjarnadóttir (Sf) (andsvar):

Forseti. Hv. framsögumaður kom inn á lyfjamarkaðinn í Evrópu og orðaði það sem svo að Lúxemborg og Malta og einhverjir svindluðu á Evrópureglunum. Ég tel það alls ekki vera, virðulegi forseti. Ég tel að eins og reglur sameiginlega markaðarins, EES, um lyf eru túlkaðar hér á landi séu þær bara allt of þröngt túlkaðar. Öryggisreglur gilda um lyf vegna þess að þau geta verið hættuleg, jafn nauðsynleg og þau eru eins og hv. þingmaður kom inn á og geta gjörbreytt lífi fólks. Hin nýju gigtarlyf hafa gjarnan verið notuð sem dæmi um það hvernig fólk sem hafði ekki starfsorku áður eða neitt lifir nú eðlilegu lífi. Við sjáum hvernig krabbameinslyf lengja líf fólks og alltaf eru að koma ný og ný þannig að það er enginn vafi á því. En lyf eru hættuleg. Þess vegna gilda um þau sérstakar öryggisreglur. Þær öryggisreglur sem um þau gilda eru notaðar hér á landi sem tæknileg viðskiptahindrun. Það var einmitt það sem gerðist þegar innri markaðnum var komið á, þá var tæknilegum viðskiptahindrunum útrýmt í Evrópubandalaginu sem þá hét. Þeim var útrýmt. Það hefur ekki gerst í lyfjunum. Þessar öryggisreglur sem eru nauðsynlegar vegna þess að lyf eru hættuleg efni eru notaðar hér á landi sem tæknileg viðskiptahindrun.