145. löggjafarþing — 160. fundur,  29. sept. 2016.

álitamál vegna raflínulagna að Bakka.

[10:41]
Horfa

iðnaðar- og viðskiptaráðherra (Ragnheiður E. Árnadóttir) (S):

Virðulegur forseti. Ég vil í upphafi geta þess að þetta frumvarp er ekki samið eingöngu í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu heldur var samið í samstarfi forsætisráðuneytisins, umhverfis- og auðlindaráðuneytisins og nýsköpunarráðuneytisins, þeirri hlið þess ráðuneytis sem undir mig heyrir. Við undirbúning málsins var að auki fengið utanaðkomandi lögfræðiálit frá einni stærstu lögfræðiskrifstofu hérlendis, LOGOS, þar sem lögfræðiskrifstofan var sérstaklega beðin um að fara yfir þá alþjóðasamninga sem hv. þingmaður og fyrirspyrjandi innti eftir, þar á meðal Árósasamninginn og EES-skuldbindingar. Þar kom skýrt fram að ef þeir samningar og skuldbindingar eru lesnar tekur Árósasamningurinn til stjórnvaldsákvarðana og réttinda borgaranna til að hafa á þeim skoðanir og kæra. Hér er um að ræða lagasetningu þar sem þjóðkjörnir fulltrúar eiga sæti á Alþingi og standa að þessari löggjöf. Árósasamningurinn nær samkvæmt því lögfræðiáliti sem við öfluðum okkur ekki til slíkra ákvarðana.

Það er alveg rétt að þarna er verið að grípa inn í það ferli. Það hefur alltaf verið augljóst öllum og algjörlega tekið fram í allri þessari vinnu að verið er að grípa inn í það ferli, en samkvæmt þeim upplýsingum og álitum sem við öfluðum okkur er þarna ekki um möguleg brot á þessum samningsskuldbindingum að ræða. Lögfræðistofan tók enn fremur að sér að skoða þetta með tilliti til stjórnarskrárinnar og komst að sömu niðurstöðu að ekki væri verið að brjóta stjórnarskrá.