145. löggjafarþing — 160. fundur,  29. sept. 2016.

álitamál vegna raflínulagna að Bakka.

[10:43]
Horfa

Svandís Svavarsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Á fundi nefndarinnar í gær komu fram mjög þungar athugasemdir við það með hvaða hætti umrædd lögmannsstofa hefði fjallað um Árósasamninginn, vegna þess að þar er í raun bara verið að fjalla um það sem ráðherrann nefnir hér en ekki þann hluta lagasetningarinnar að taka kæruferlið úr sambandi. Um þann þátt er því ekki fjallað, það er það sem er ámælisvert. Um mannréttindasáttmála Evrópu er ekki fjallað í álitinu og eru stórar líkur til þess að á þeim réttindum sé brotið enda kemur það fram hjá umræddum lagaprófessor. Það er greinilegt að hér bendir hver á annan, forsætisráðuneytið bendir á iðnaðarráðuneytið og iðnaðarráðuneytið bendir á forsætisráðuneytið og iðnaðarráðuneytið bendir á LOGOS og svo endaði það með því að forsætisráðuneytið sagði í gær að það væri þingsins að meta þetta. Gott og vel.

Ég vil spyrja hæstv. ráðherra um bréf sem kom frá úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála inn í málið þar sem talað er um að úrskurður gæti verið kveðinn upp í vikunni 10.–14. október. Eigum við ekki að bíða með þessa löggjöf, sem er greinilega ekki hafin yfir vafa, og leyfa eðlilegum lögboðnum ferlum að klárast þegar svona stutt er í niðurstöðu í þeim málum?