145. löggjafarþing — 160. fundur,  29. sept. 2016.

samningar um NPA-þjónustu.

[10:55]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Eygló Harðardóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Guðmundi Steingrímssyni fyrir fyrirspurnina þar sem hann segir að tilraunaverkefnið hafi verið framlengt út af einhverju. Hv. þingmaður ætti að kannast við það, þar sem verkefnið var undir hans forustu, að það tafðist að koma verkefninu af stað. Þá var talin ástæða til að framlengja verkefnið þannig að við gætum fengið niðurstöður sem hv. þingmaður er líka að kalla eftir. Ég hef verið að bíða eftir að fá þær niðurstöður á mitt borð. Þær eru ekki enn þá komnar. Þá lægi fyrir hver er í raun og veru tillagan og ramminn sem verkefnisstjórnin mun leggja til varðandi lögfestinguna á notendastýrðri persónulegri aðstoð.

Síðan kemur líka fram í fyrirspurn hv. þingmanns að hann virðist ekki vita af því að núna í sumar hefur legið fyrir frumvarp á netinu til umsagnar hjá nefnd sem ég skipaði um breytingar á félagsþjónustulögunum og lögum um málefni fatlaðs fólks þar sem lagt er til að notendastýrð persónuleg aðstoð verði lögfest. Hins vegar kom það fram í því frumvarpi að tilraunaverkefnið yrði framlengt, sem er eitthvað sem ég er ekki sammála og mundi ekki leggja til. Það skilst mér að hafi verið vegna áhyggna frá sveitarfélögunum.

Þar sem hv. þingmaður situr í flokki sem er með fólk í lykilstöðu í alla vega þremur ef ekki fjórum af stærstu sveitarfélögum landsins vil ég eindregið hvetja þingmanninn til þess að eiga gott samtal við sína fulltrúa í sveitarstjórnum þannig að við getum farið að setjast yfir það hvernig við getum unnið með lögfestinguna í góðu samstarfi við sveitarfélögin eins og ég hef ætíð gert. (Gripið fram í.)