fjárhagsstaða heilsugæslunnar.
Hæstv. forseti. Grafarvogur er stórt hverfi í Reykjavík. Ef ný reikniformúla þýðir skerðingu á heilsugæsluþjónustu við þetta hverfi þá er þetta formúlukerfi ónýtt, svo mikið veit ég. En ég vil ítreka hér við ráðherra að stuðningur okkar í velferðarnefnd byggði á trausti til þess að hann og hæstv. fjármálaráðherra stæðu við orð sín. Í nefndarálitinu segir: 300–400 millj. kr. á yfirstandandi ári. Mun hæstv. ráðherra koma með þessa peninga inn á milli umræðna? Eða er hann að bregðast trausti okkar sem héldum að við værum í raun og veru að taka þátt í því að bæta heilsugæsluna á Íslandi? (ÖS: Svaraðu í rauntíma.)