145. löggjafarþing — 161. fundur,  3. okt. 2016.

lenging fæðingarorlofs og hækkun greiðslna.

[11:42]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Eygló Harðardóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka fyrirspurnina. Spurt er hverju við vorum að velta fyrir okkur þegar við tókum við stjórn þessa lands. Við töldum einkar mikilvægt að byrja fyrst á að afla tekna til þess að fjármagna það sem gera þyrfti í velferðarkerfinu. (SII: Með lækkun veiðigjalda þá?) Þess vegna lögðum við áherslu á að fara í leiðréttingar á skuldum heimilanna, endurreisa stöðu heimilanna og endurreisa hér íslenskt efnahagslíf. Við höfum séð það á þessu kjörtímabili að það sem við höfum gert hvað það varðar hefur skipt verulega miklu máli. Staða heimilanna er nú með því besta sem þekkist á Norðurlöndunum þegar kemur að skuldum þeirra. Við erum með hagvöxt hér sem þekkist varla innan OECD-ríkjanna og við höfum allar forsendur til þess að halda áfram að efla okkar góða velferðarkerfi. Ég veit að það verður mikil og góð samvinna um það hér, eins og verið hefur almennt þegar kemur að velferðarmálum í þinginu.

Ég vil líka fá að segja það hér að Framsóknarflokkurinn er í stjórnarsamstarfi. (Forseti hringir.) Við erum að vinna að því að klára ákveðið mál og munum gera það saman.