framhald þingstarfa.
Virðulegi forseti. Finnst virðulegum forseta viðunandi sú staða sem upp er komin í þinginu að við erum hér tekin til starfa án þess að vera með starfsáætlun og það eru innan við fjórar vikur til kosninga? Finnst virðulegum forseta það vera eðlileg og viðunandi staða? Mér finnst það ekki. Mér þykir það vera algjör vanvirðing við þingið að virðulegi forseti láti það viðgangast. Ég verð bara að segja, því miður, að ég hafði búist við meiru. Ég hafði búist við því að þingið gæti verið með aðeins betra skipulag en raun ber vitni. Ég hvet virðulegan forseta til þess að beita sér í því að fá stjórnarflokkana til þess að koma sér saman um hvaða mál á að klára og upplýsa minni hlutann hvaða mikilvægu mál það eru. Ætla þeir að klára öll málin eða bara nokkur eða engin? Það verða engin mál kláruð úr þessu.