145. löggjafarþing — 161. fundur,  3. okt. 2016.

framhald þingstarfa.

[15:22]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Forseti hefur verið að reyna að beita sér fyrir því með því að hvetja til þess að fram fari fundir forustumanna flokkanna til þess nákvæmlega að ná því fram sem hv. þingmaður hefur réttilega verið að kalla eftir, að við getum haft einhvern ramma utan um þingstörfin næstu dagana til þess að ljúka þessu þingi.