145. löggjafarþing — 161. fundur,  3. okt. 2016.

framsal íslenskra fanga.

790. mál
[15:46]
Horfa

Steingrímur J. Sigfússon (Vg):

Herra forseti. Ég mátti ekki við bindast og skerast úr leik að þakka hv. þm. Össuri Skarphéðinssyni fyrir þessa fyrirspurn, einn af 15–20 þingmönnum sem það hafa gert. Hann hreyfir hér við alvarlegu máli. Ég held að við finnum öll til með svipuðum hætti þegar fréttir berast af ólánsömum ungmennum sem eru annaðhvort meira og minna saklaus fórnarlömb eða hafa lent út af sporinu í lífinu, lenda í því að fá á sig þunga fangelsisdóma erlendis þar sem aðbúnaður er langt fyrir neðan það sem við teljum boðlegt. Hefðum við Íslendingar þó lengi vel og jafnvel enn getað staðið okkur betur í því að búa vel að föngum sem hér taka út dóma. Ég er eindreginn stuðningsmaður þess að reynt sé að tryggja það með samningum og eftir öllum öðrum mögulegum leiðum að alltaf þegar aðstæður mæla með því sé reynt að fá slíkt fólk heim og vinna úr málum þess hér. Það finnst mér eiga að vera hluti af þegnrétti sem ríkisborgari hér í landinu að fá stuðning samfélagsins þegar þannig er komið.