145. löggjafarþing — 161. fundur,  3. okt. 2016.

framsal íslenskra fanga.

790. mál
[15:52]
Horfa

utanríkisráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmönnum fyrir gagnlegar og mikilvægar umræður um þennan málaflokk. Ég held að það sé afar brýnt við þessar aðstæður að aðstæður þessara fanga séu viðunandi og mannréttindi þeirra tryggð. Það er þess vegna sem við sinnum þessum málaflokki býsna vel, mundi ég segja, í utanríkisþjónustunni. Þótt við getum ekki rætt mál einstaklinga hér í ræðupúlti þingsins get ég fullvissað ykkur um að heilmikill tími og orka hafa farið í þessi mál.

Varðandi fyrirspurn hv. 5. þm. Norðvest., um hvort fangelsin séu undir þetta búin, er það sú vinna sem er verið að fara í akkúrat núna, þetta samstarf á milli innanríkisráðuneytisins og utanríkisráðuneytisins. Við þurfum líka að vera tilbúin hér heima fyrir slíka samningagerð.

Ég vil líka ítreka að það er möguleiki að þessi fangaskipti séu gerð undir núverandi samningum en við teljum hins vegar að til þess mögulega að flýta fyrir slíkum skiptum sé brýnt að fara í að gera þessa afplánunarsamninga.