umræða um samgönguáætlun og fjarvera innanríkisráðherra.
Herra forseti. Það virðist vera ætlunin hér, nú þegar við erum komin fram yfir framlengda starfsáætlun, að halda þingfundi eingöngu fyrir minni hlutann á þingi. Hér eigi minni hlutinn að halda uppi þingstörfum. Lítið sést til hv. þingmanna og hæstv. ráðherra stjórnarflokkanna og ég leyfi mér að taka undir með hv. þm. Árna Páli Árnasyni sem vitnaði í fordæmi frá því fyrir síðustu kosningar þegar þingfundir voru felldir niður þegar forsvarsmenn stjórnarflokkanna þá gátu ekki verið við þingfundi. Hvers vegna erum við að halda þingfundi hér? Til þess að minni hlutinn haldi uppi heiðri þingsins? Það er auðvitað ekki boðlegt, herra forseti, það er ekki í lagi að halda svona áfram daga og vikur fram að kosningum. Við hófum hér störf í ágúst með hálftímalöngum þingfundum, sem voru auðvitað engum til sóma, þegar við hefðum átt að vera að vinna að málunum. Og nú er hér haldið áfram fram yfir framlengda starfsáætlun en hv. þingmenn stjórnarliðsins sjást ekki. Það er ekki í lagi, (Forseti hringir.) herra forseti.