145. löggjafarþing — 161. fundur,  3. okt. 2016.

umræða um samgönguáætlun og fjarvera innanríkisráðherra.

[16:00]
Horfa

Össur Skarphéðinsson (Sf):

Herra forseti. Hæstv. forseta er vorkunn. Forustumenn stjórnarflokkanna, a.m.k. Sjálfstæðisflokksins, smjúga sem leir úr greip hans. Þeir eru að flýja þann veruleika sem blasir við okkur. Þeir eru staddir í Neskaupstað, á Reyðarfirði og halda pólitíska fundi. Vitaskuld misbýður mér þetta sem þingmanni. Mér finnst það fráleitt að forusta stjórnarflokks skuli á þessum tíma ekki koma til þings. Sér í lagi er það fráleitt þegar haft er í huga að hæstv. forseti sagði hér í dag að ekki væri hægt að leggja fram áætlun um lyktir þings vegna þess að ekki hefði náðst samtal millum formanna. Það liggur fyrir að það hefur ekki náðst vegna þess að formaður og varaformaður Sjálfstæðisflokksins eru á kosningaferðalagi á meðan þing stendur. Eins og hér hefur verið bent á þá er það brot á þingsköpum og það hefur líka verið undirstrikað með hvaða hætti forusta þingsins hefur tekið á því. Það var gert á síðasta kjörtímabili þegar einum formanni stjórnmálaflokks var beinlínis skipað heim og sagt að ekki yrði haldinn (Forseti hringir.) fundur nema hann kæmi, enda byði 65. gr. þingskapa honum það.