145. löggjafarþing — 161. fundur,  3. okt. 2016.

umræða um samgönguáætlun og fjarvera innanríkisráðherra.

[16:04]
Horfa

Steingrímur J. Sigfússon (Vg):

Herra forseti. Þetta fer nú svo sem að verða fullrætt eða ætti að vera það. Það segir sig sjálft að við getum ekki látið bjóða okkur upp á það að formaður og varaformaður Sjálfstæðisflokksins séu á auglýstum fundum á mánudegi, á þingdegi, þar af leiðandi ekki hér við í óundirbúnum fyrirspurnum, eða innanríkisráðherra hér við til að fylgja sinni samgönguáætlun eftir, en það sé ætlast til þess að við hin afsölum okkur því að vera í okkar kjördæmum, boða fundi eða hitta okkar kjósendur, til þess að bera uppi þingstörf. Þetta getur ekki gengið svona. Eitt verður yfir alla að ganga í þessum efnum, nema þá innanríkisráðherra sé að kynna sér ástandið á vegakerfinu, ég hefði nú meiri samúð ef hún væri að keyra til Borgarfjarðar eystri eða fara yfir Brekknaheiði þar sem menn verða sennilega að fara að taka fram gulu málninguna til að mála grjótið sem gengur upp úr veginum eins og forðum. Það er víst ekki. Þau eru að funda til að reyna að safna atkvæðum á meðan við hin eigum að vera hér í þinginu.

Ég held að það þurfi ekki að ræða þetta frekar, herra forseti. Enga fundi hér fyrr en forustumenn flokkanna eru búnir að hittast, ná eitthvað utan um þetta og bara ekki á dagskrá að við látum bjóða okkur þetta. Við hljótum að hafa meiri metnað (Forseti hringir.) fyrir hönd þingsins og okkar sjálfra en það að láta þetta ganga svona áfram.