145. löggjafarþing — 164. fundur,  5. okt. 2016.

störf þingsins.

[11:27]
Horfa

Steingrímur J. Sigfússon (Vg):

Herra forseti. Ég tek undir þakkir forseta til hv. 5. þm. Norðvest., Ólínu Kjerúlf Þorvarðardóttur, og óska henni alls góðs á nýjum vegum. Ég ætla að gera hér að umtalsefni mjög fróðlegar tölur frá Hagstofunni um eignastöðu heimilanna sem Hagstofan hefur nú birt og unnið upp úr skattagögnum. Eignastaða heimilanna eða eignastaða landsmanna hefur haldið áfram að batna og hélt áfram að batna á síðasta ári rétt eins og hún hefur gert öll árin frá 2010. Það langfróðlegasta við þessar tölur að mínu mati er þó skipting þessara eigna. Í ljós kemur að 43% af öllum eignaaukanum á síðasta ári féll í hendur 10% ríkasta fólksins. 10% ríkasta fólkið, efsta tekjuhæsta tíundin, á hreinar eignir upp á 1.880 milljarða kr., eignir umfram skuldir upp á 1.880 milljarða kr. af tæplega 3.000 milljarða eignum landsmanna í heild. Þessi hópur á sem sagt 64% af allri hreinni eign heimila í landinu. Ef við tökum næstu tíund með, tekjuhæsta fimmtunginn, þá á hann 87% af öllu saman.

Skoðum aðeins hinn endann. Ef við tökum tekjulægri helming landsmanna, hvað á hann mikið, 50%, helmingurinn af menginu, 100 þúsund manns? Nei, þeir skulda 211 milljarða umfram eignir. Svo svakalega misskipt er þessum eignum. En þetta eru hóparnir, tekjuhæsta fólkið, sem þessi ríkisstjórn valdi að setja í sérstakt öndvegi og forgang með því að fella niður auðlegðarskatt og með því að moka tugum milljarða af skattfé í að lækka skuldir þessa fólks sem einhverjar átti, auka auð þeirra. Það er staðreynd. Þetta hefur ýtt undir þessa hrottalegu misskiptingu auðs (Forseti hringir.) sem við Íslendingar erum hér að sjá framan í eins og margar aðrar vestrænar þjóðir. Þarf ekki að ræða þetta og taka eitthvað á þessu?


Efnisorð er vísa í ræðuna