145. löggjafarþing — 164. fundur,  5. okt. 2016.

framhald þingstarfa.

[15:03]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Forseti getur vel upplýst, sem öllum hv. þingmönnum er kunnugt, að ekki hefur mikið breyst hvað þær forsendur varðar sem hv. þingmaður nefnir. Hins vegar er það mat forseta, eins og það var mat hans í gærkvöldi, að þrátt fyrir það væri eðlilegt að boða til fundar í dag með þeirri dagskrá sem hér liggur fyrir.