145. löggjafarþing — 164. fundur,  5. okt. 2016.

framhald þingstarfa.

[15:05]
Horfa

Brynhildur Pétursdóttir (Bf):

Virðulegi forseti. Ég tek undir það sem hér kom fram og gerði eiginlega ráð fyrir að forseti mundi setja fund og slíta svo fundi en fyrst það hefur ekki verið gert liggur væntanlega eitthvað fyrir. Þá er einhverra frétta að vænta og við verðum væntanlega boðuð á þingflokksformannafund fljótlega.