framhald þingstarfa.
Virðulegur forseti. Orð skulu standa. Stjórnarandstaðan hefur staðið við sinn hlut þess samkomulags sem gert var á vordögum um afgreiðslu mála. Hér hefur gjaldeyrishöftum verið lokið, þeim þingmálum sem tengdust húsnæðismálum og sömuleiðis því sem laut að búvörusamningum og tollum. Þá er ekki hægt að koma með nýjan stabba af málum eins og þm. Jón Gunnarsson reynir hér og segja: Og þetta líka og þetta líka og þetta líka. Því um það var ekki samið í vor þegar formaður Sjálfstæðisflokksins lýsti því yfir að þetta þing yrði stytt um sem næmi einu þingi, en nýtt þing átti að hefjast annan þriðjudag í september. Við erum komin inn í október og það er ekkert sem kallar á það að afgreiða eitt einasta mál annað en gjaldeyrishöftin sem ekki er hægt að gera í nóvember að loknum kosningum af þeim þingmeirihluta sem þá situr. Stjórnarmeirihlutinn hér, rúinn fylgi og (Forseti hringir.) trausti, á enga lýðræðislega kröfu á því að fá nein mál afgreidd (Forseti hringir.) næstu daga fyrir kosningar. Ef hann fær til þess meiri hluta þá getur hann klárað þau hér í nóvember og verður bara að bíða þangað til.