145. löggjafarþing — 164. fundur,  5. okt. 2016.

dagskrá næsta fundar.

[15:40]
Horfa

Árni Páll Árnason (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að fagna komu þessara ágætu farfugla í salinn sem ekki hafa sést hér undanfarna daga, þingmanna stjórnarmeirihlutans sem verið hafa uppteknir við kosningabaráttu sína. Sérstaklega býð ég velkominn hæstv. fjármálaráðherra, yfirflakkarann, sem háði kosningabaráttu austur á landi á mánudaginn þegar (Forseti hringir.) óskað var eftir viðveru hans hér í …

(Forseti (EKG): Forseti biður hv. þingmann, sem er dálítið með þann plagsið að uppnefna fólk, að láta af þeim leiða vana.) [Hlátur í þingsal.]

Virðulegi forseti. Ég var einfaldlega að lýsa því að maðurinn er flakkari og hann er búinn að vera að flakka. Það er ekki uppnefni.

Við erum komin með þingstörfin á þann alvarlega stað að við höfum verið að funda klukkustundum saman í fjárlaganefnd um alvörumál, lífeyrissjóðsmál opinberra starfsmanna, klukkutímum saman. Þar höfum við boðið gestum upp á það að einu nefndarmennirnir sem verið hafa á staðnum af hálfu stjórnarmeirihlutans eru tveir stjórnarþingmenn (Forseti hringir.) sem eru að hætta störfum. Hér er verið að setja upp fáránleg leiktjöld, hér er verið að ganga á grundvallarleikreglur lýðræðisins og það er ekki boðlegt, virðulegi forseti. Ég hvet þingmenn til að greiða atkvæði með þessari tillögu og reyna að stöðva stjórnarmeirihlutann á þessari fáránlegu vegferð.