145. löggjafarþing — 164. fundur,  5. okt. 2016.

fjögurra ára samgönguáætlun 2015--2018.

638. mál
[16:13]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Auðvitað er samgönguáætlun mjög mikilvægt mál. Þess vegna er bagalegt að ekki hafi verið nein samþykkt samgönguáætlun í gildi síðustu missiri og ár. Ég vona að það klúður sem ég vil leyfa mér að segja að hafi verið hér á þingstörfunum síðustu daga, þar sem starfsáætlun Alþingis er runnin út, hafi ekki orðið til þess að skapa okkur eitthvert vandamál þegar kemur að því vegna þess einfaldlega að dögunum fækkar fram að kosningum sem við höfum til að klára mál. Eftir því sem dögunum fækkar verður eðli málsins samkvæmt minni tími fyrir hvert og eitt þingmál sem hér er hægt að ljúka. Ég vona hins vegar að formenn stjónmálaflokkanna muni eiga samtöl sem við höfum rætt hér í dag og í gær, undir liðnum fundarstjórn forseta, sem nauðsynlegt er að eigi sér stað til þess einmitt að það komist á hreint hvaða mál formenn stjórnarflokkanna setja á oddinn og vilja nota tímann til að klára. Þá held ég að þingið geti gert ýmislegt en það þarf að liggja fyrir hvar áherslan er. Það er það sem við höfum kallað eftir.

Ég verð að svara þessu með hæstv. ráðherra í seinna andsvari.