fjögurra ára samgönguáætlun 2015--2018.
Hæstv. forseti. Það er meðal annars þetta sem mig langar að koma inn á í seinni ræðu minni. Ég ætla samt að tæpa aðeins á því á þeim tveimur mínútum sem ég hef hérna.
Fyrst aðeins varðandi umferðarslys: Banaslys og alvarleg umferðarslys eru í kringum 160 til 170 á ári og ef það gerðist í öðrum greinum eða annars staðar í þjóðfélaginu yrði það kallað hamfaraástand. Í sjómennskunni hefur verið notuð svokölluð núllsýn, þ.e. að við viljum ekki að neinn deyi. Enginn. Unnið hefur verið markvisst að því með öryggisaðgerðum, námskeiðum, fræðslu, öryggisbúnaði og reglum. Ég held að við ættum að vinna að því að tak upp núllsýn í umferðinni líka. Við ættum að byggja samgöngumannvirkin þannig upp. Við þyrftum að hafa bílana þannig, fræðsluna, reglurnar. En þetta gerist ekki á einni nóttu og það ætti að vera langtímaverkefni að komast í núllsýn. Það er alla vega mín skoðun.
Nú hef ég 30 sekúndur eftir í fjármögnunina. Ég skoðaði það aðeins fyrr á þessu ári. Ef ég skildi það rétt þá eru mörkuðu tekjurnar bara hluti af þeim gjöldum sem eru innheimt á bifreiðarnar eða skattur sem er lagður á umferðina. Ég taldi upp nokkur meðan þingmaðurinn beindi til mín orðunum, það er olíugjald, bensíngjald, þungaskattur með virðisaukaskatti og bifreiðagjöld. Ef ég man rétt, þetta er sagt með fyrirvara, þá eru það kringum 60 milljarðar. Það er þrisvar sinnum hærra en við erum að setja í áætlun á ári. Hugsanlegt er að við getum skilað (Forseti hringir.) meira af þeim sköttum sem við rukkum umferðina um í vegakerfið, en við notum þá ekki annars staðar á meðan.